Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1999, Page 66

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1999, Page 66
og geta félagsmenn þá með auðveldum og fljótvirkum hætti leitað að fræði- greinum sem birst hafa í tímaritinu. Öruggt er að þessi nýbreytni mun gera tímaritið enn mikilvægara og aðgengilegra fræðirit á sviði lögfræðinnar. Auk útgáfu Tímarits lögfræðinga gefur lögfræðingafélagið út fréttabréf fé- lagsins. Fréttabréfið er gefið út þegar þurfa þykir, en þar birtast tilkynningar til félagsmanna um það sem framundan er í starfsemi félagsins. 7. Samningur um endurmenntun Á starfsárinu var undirritaður samstarfssamningur lagadeildar Háskólans, Lögmannafélags Islands, Lögfræðingafélags Islands, Orators, félags laganema og Dómarafélags Islands, sem gefur m.a. félagsmönnum lögfræðingafélagsins kost á að afla sér endurmenntunar með því að sitja tíma í völdum greinum sem kenndar eru í lagadeild. Á þessi möguleiki án efa eftir að koma ýmsum félags- mönnum til góða, enda er símenntun ein megin forsenda þess að lögfræðingar geti sinnt störfum sínum sem skyldi. 8. Lögfræðingafélagið 40 ára Lögfræðingafélag Islands var stofnað árið 1958. Félagið er því 40 ára um þessar mundir. I tilefni af þeim tímamótum skrifaði Davíð Þór Björgvinsson prófessor sögu félagsins í Tímarit lögfræðinga. Þá lét stjóm félagsins hanna merki fyrir félagið, en það merki kemur nú til með að prýða forsíðu Tímarits lögfræðinga, fréttabréf félagsins og önnur gögn sem frá félaginu koma. 9. Samstarf við systurfélög á Norðurlöndunum Árlegur fundur framkvæmdastjóra norrænna lögfræðingafélaga var haldinn hér á landi 19.-21. ágúst í sumar. Brynhildur Flóvenz, framkvæmdastjóri Lög- fræðingafélags íslands, hafði veg og vanda af skipulagningu fundarins og sótti hann f.h. félagsins. 10. Lokaorð Svo sem skýrsla félagsins ber með sér hefur starfsemi félagsins verið með nokkuð hefðbundnu sniði síðastliðið starfsár. Ymis verkefni önnur en þau sem hafa verið nefnd eru í vinnslu á vegum félagsins. T.d. stendur undirbúningur vegna fyrirhugaðrar fræðaferðar til Kína næstkomandi vor nú sem hæst. Þá bindur stjórn félagsins miklar vonir við að aukin notkun intemetsins muni hjálpa félaginu við að miðla upplýsingum og efni til endurmenntunar til félags- manna á komandi ámm og er grundvöllur að frekari vinnu á því sviði lagður með tölvukaupum félagsins á árinu. Eg vil að endingu þakka öllum stjórnarmönnum og framkvæmdastjóra fé- lagsins fyrir sérstaklega gott samstarf á starfsárinu. Helgi Jóhannesson 60

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.