Ægir - 01.01.1996, Page 10
A sýningu í Suður—Afríku
Atli Jósafatsson hjá J. Hinriksson fjarri heimaslóð
Þórir Ólafsson skip-
stjóri á Zenica, sem
er gerö út frá Wal-
vis Bay í Namibíu,
ásamt stýrimanni
sínum Derek Wed-
nesday. Þeir skarta
báðir eyrnalokkum
úr Poly-Ice lykla-
kippum en þœr
hafa notið mikila
vinsælda meðal
innfceddra.
Atli á faraldsfæti
Nýlega fór Atli Jósafatsson fyrir J.
Hinriksson á fyrstu alþjóðlegu sjávar-
útvegssýninguna sem haldin hefur
verið í Höfðaborg (Cape Town) í Suð-
ur-Afríku. Þar og í nágrannalandinu
Namibíu hefur verið mikill uppgang-
ur í sjávarútvegi að undanförnu. í
Namibíu hafa íslendingar komið all-
mikið við sögu þar sem heimamenn
hafa verið að byggja upp eigin útveg
eftir að landið fékk sjálfstæði en það
var áður hluti Suður-Afríku. Atli not-
aði tækifærið og fór í kynnisferð um
Namibíu ásamt Vilhjálmi Ólafssyni frá
Sæplasti hf. og kynnti þarlendum út-
gerðum framleiðsluvörur fyrirtækj-
anna og nú þegar eru farnir tugir
tonna af hlerum og öðrum vörum J.
J. Hinriksson er vélsmiðja við
Súðarvog sem framleiðir toghlera
og sitthvað fleira til togveiða þó
hlerarnir séu þeirra aðalsmerki.
Poly-lce hlerarnir eru leiðandi á
íslenska markaðnum og fáir Is-
lendingar sem ekki þekkja Jósa-
fat Hinriksson frumkvöðul og
upphafsmann J. Hinriksson.
J. Hinriksson er eitt þeirra íslensku
fyrirtækja sem fyrir mörgum árum sleit
af sér hlekki heimamarkaðarins og hef-
ur um áratuga skeið selt meirihluta
framleiðslu sinnar á erlendan markað
og einkum sótt fram á markaði við
norðanvert Atlantshaf í nágrenni ís-
lands. Fyrirtækið hefur verið óragt að
sækja á framandi slóðir og þær skipta
tugum sjávarútvegssýningarnar þar sem
J. Hinriksson hefur átt fulltrúa og sýnis-
Zenica er norsk
smtði, upphaflega
kanadískur togari í
eigu Fishery Products
á Nýfundnalandi.
Daemigert namibískt
fiskiskip í dag. Mynd-
ir með greininni á
Atli Jósafatsson.
horn af framleiðslu sinni. Hleramir hafa
nú náð fótfestu á mörkuðum í öllum
álfum heimsins þar sem menn stunda
fiskveiðar til sjós og í vötnum og eru
seldir til meira en 20 landa. Hlerarnir
eru meðal annars í notkun á Viktoríu-
vatni og Malavívatni í Afríku.
íslenskir sjómenn fara einnig víða um
heiminn og þeir hafa verið iðnir sölu-
menn fyrir íslenskar framleiðsluvörur
sem tengjast sjávarútvegi því þeir vita af
fenginni reynslu að það sem dugar vel á
íslandi er það besta sem völ er á.
10 ÆGIR