Ægir - 01.01.1996, Síða 16
Stærstir á sínu sviði
Marel hf.
Marel hf. er tólf ára gamalt fyrirtæki sem framleiðir
vogir, flokkara, skurðarvélar og fjölþættan búnað
fyrir fiskvinnslu og matvælaiðnað. Vöxtur þess og
viðgangur hefur verið með ólíkindum sem sést
kannski best á því að árið 1995 jókst velta Marels
úr tæpum 770 milljónum í um 1.100 milljónir og
með því skipar fyrirtækið sér í hóp 10 stærstu iðn-
fyrirtækja á íslandi. Með þessari aukingu er Marel
komið í sama stærðarflokk og rúmlega 20 stærstu
fyrirtæki í sjávarútvegi og fiskvinnslu á landinu ef
miðað er við atvinnugreinina sem Marel þjónar
einna helst.
Lárus Ásgeirs-
son markaðs-
stjóri Marel.
I;ramsókn Marel hf. á erlendum vettvangi hefur jafnan ver-
ið mikil og nú eru búnaður frá fyrirtækinu í 40 þjóðlöndum
um allan heim og umboðsmenn og dreifingaraðilar í 20 lönd-
um. Alþjóðamarkaður er undirstaða framleiðslunnar og 1994
voru 14% framleiöslunnar seld á íslandi en Evrópa er með
37% og Noröur-Ameríka meö 31% hlutdeild í framleiðslunni
þaö ár.
Þrjú dótturfyrirtæki vestanhafs
Marel hf. starfrækir þrjú dótturfyrirtæki, Marel Equipment
Inc. í Nova Scotia, Kanada, Marel Seattle Inc. í Seattle í
Bandaríkjunum og Marel USA Inc. í Kansas City í Bandaríkj-
unum. 370 hluthafar eiga Marel sem er skráö á íslenska hluta-
bréfamarkaðnum.
Nú starfa 115 starfsmenn hjá móðurfyrirtækinu en af þeim
eru 40 meö háskólagráðu í verkfræði eða tölvufræði, 37 iðn-
lærðir og 4 iðnnemar. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á vöm-
þróun og hönnun til þess að fylgja eftir þeirra stöðugu þróun
sem verður í fiskvinnslu og matvælaiðnaði og setur um 15%
af veltu fyrirtækisins árlega til vöruþróunar og rannsókna.
Vélmenni tekur fisk af færibandi
Nýjasta afsprengi þeirra rannsókna er vélmenni sem getur
tekið upp fisk af færibandi og sett t.d. í hausunarvél. Með því
að vélmennið getur leyst þetta verkefni, þ.e. að taka blautan
og afsleppan fisk upp, er stærsti hjallinn yfirstiginn. Frum-
gerö (prótótýpa) þessa vélmennis verður sett upp í Granda
hf. seinnihluta þessa árs.
„Þetta er merkilegt verkefni en tilheyrir framtíðinni og
með því erum við að gefa til kynna hvert við viljum stefna,"
sagði Lárus Ásgeirsson markaðsstjóri Marel í samtali við Ægi.
„Það eru hins vegar fjöldi verkefna og úrlausna í núinu
sem við vinnum aö sem eru ekki síður athyglisverð og þýð-
ingarmikil fyrir fiskvinnsluna."
Vaxandi kröfur fiskvinnslu um aukna sérhæfni en jafn-
framt sveigjanleika sjást vel í verkefni sem Marel er að vinna
að í Venusi HF sem nýlega kom úr gagngerum endurbótum í
Póllandi. Marel hannar alla vinnslulínu skipsins, frá móttöku
að frysti, og sérsníður línurnar að kröfum útgerðarinnar.
„Þaö sem vinnsluskipin vilja gjarna fá er möguleiki til auk-
innar fullvinnslu um borð," sagði Friðrik Guðmundsson sölu-
stjóri og minnir á að færeyski úthafstogarinn Vesturvon, sem
fullvinnur flök í bita fyrir Marks & Spencer um borð og marg-
ir horfa aðdáunaraugum til, hefur um árabil verið með tækja-
búnað frá Marel eins og mörg aflaskip íslendinga í fremstu
röð, svo sem Guðbjörg ÍS.
Fullkomin vinnslulína
Um borð í Venusi verður hægt ab meðhöndla karfa, þorsk,
ufsa, ýsu, grálúðu og síld. Hægt verður ab vinna tvær fiskteg-
undir eða tvo gæöaflokka samtímis án þess að flutningsleiðir
eða vinnsluþrep skarist. Hönnun vinnslurásarinnar gerir ráð
fyrir að minnka vinnu eða leysa af hólmi verkþætti sem
nema nokkrum starfsígildum í sambærilegum frystitogara.
Þetta gerir mönnum kleift að fullvinna ákveðnar tegundir
þegar þær veiðast en hafa grófari vinnslu á öðrum tegundum.
Hvert gramm skiptir máli
Að sögn Lárusar eru helstu sóknarfærin á sviði aukinnar
nákvæmni. Á tímum takmarkaðs afla sé eðlilegt ab horfa á
verðmætin og hvert gramm skipti máli. Hægt sé að bæta nýt-
ingu með aukinni nákvæmni í skurði, bættri flokkun, ná-
kvæmari vigtun og víða séu tækifæri á þessum sviðum.
Að sögn þeirra Friðriks og Lárusar er meira svigrúm fyrir
bætta nýtingu um borð í vinnsluskipunum frekar en í vinnsl-
unni í landi þar sem þróunin hafi orðið meiri undanfarin ár.
Skurðarvélin frá Marel sem þegar hefur vakið mikla athygli
er gott dæmi um þetta. 25 vélar eru þegar seldar en abeins
þrjár hafa veriö settar upp í íslenskum frystihúsum og engin
enn sem komið er í frystitogara en slíkt er tæknilega vel
mögulegt.
„Það verður að horfa á heildarmyndina," sagði Lárus.
„Skurðarvélin ein og sér veldur engri byltingu en með rétt-
um flokkunartækjum og pökkunarlínum skiptir hún sköp-
um." □
16 ÆGIR