Ægir - 01.01.1996, Síða 26
Viljum breytt hlutaskipti
Helgi Laxdal formaður Vélstjórafélags íslands
Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags íslands, hefur áratuga reynslu
af því að berjast fyrir réttindum félaga sinna ■ vélstjórastétt enda sjálf-
ur skólaður í vélarrúminu. Hann hefur unnið undanfarin ár að því að
þjappa vélstjórum saman í heilsteypta fylkingu eftir að Vélstjórafélag-
ið sagði sig úr lögum við Farmanna- og fiskimannasamband íslands
1991 og stendur nú á eigin fótum. Hann átti þátt í að koma á fót sam-
ráðsnefnd sjómanna og útvegsmanna um fiskverð og hefur veitt henni
forstöðu en stofnun nefndarinnar átti einna stærstan þátt í lausn síð-
ustu kjarasamninga. Hver voru tildrög þess að nefnd þessi var sett á
laggirnar?
„Samkvæmt kjarasamningum fiski-
manna, eins og þeir litu út fyrir
síöasta verkfall, þá var það
útgerðarmaðurinn sem réð sölu
aflans. Þess vegna er í raun tómt mál
að tala um frjálst fiskverð þó slíkt hafi
verið að forminu til um nokkurt
skeið. í samningum 1994 var sett upp
nefnd sem átti að koma í veg fyrir
kvótabrask. Þeirri nefnd var settur
rúmur vinnurammi og hún gerði í
raun lítið annað en aö rífast á sínum
fundum en náði litlum árangri. í
framhaldinu gerbu menn sér ljóst að
kvótabraskið verður ekki til vegna
þess ab heimilt er ab framselja kvóta
frá einu skipi til annars, heldur vegna
þess ófullkomna verbmyndunarkerfis
sem vib búum vib í sjávarútvegi,"
segir Helgi þegar hann í samtali við
Ægi rifjar upp tilurð nefndarinnar.
„Ef allur afli færi í gegnum markað
þá væri þetta aldrei vandamál.
í síðustu samningum sátum við
uppi meb þetta vandamál og
sjómannasamtökin voru ekki alveg
einhuga í afstöðu sinni til þessa máls
en vildu helst krefjast þess að allur
afli færi á markab. Við höfðum kynnt
okkur nokkuð afstöbu sjómanna og
ég tel að ekki hafi verið meirihluti
meöal þeirra til þessa. Málið er ekki
eins einfalt og það virðist við fyrstu
sýn."
Myndu versla við sjálfa sig
„Víða úti á landi eru engir
fiskkaupendur nema þeir sem
jafnframt eru í útgerð og þeir myndu
þá einfaldlega versla vib sjálfa sig í
það minnsta fyrst í stað. Ég er
sannfærður um að ef slíkri breytingu
yrði komiö á myndi hún leiða til þess
að fiskverð myndi fyrst í stað lækka í
stað þess að hækka eins og margir
26 ÆGIR