Ægir - 01.01.1996, Blaðsíða 31
farskipum meö skattaívilnunum
gagngert til þess aö halda störfunum í
landinu. Þetta finnst íslendingum
ómögulegt. Þeir vilja frekar sjá heilar
atvinnugreinar, eins og skipasmíði, fara
úr landi vegna niðurgreiðslna annarra
þjóða í stað þess að svara í sömu mynt.
I dag eiga íslendingar um 20 farskip,
þar af 6 undir íslensku flaggi. Þessum
skipum hefur fækkað gífurlega á
undanförnum árum. Að megninu til
eru íslenskar áhafnir á skipunum og
íslenskir yfirmenn á þeim langflestum.
Mér finnst ekki vera hart sótt að
okkar mönnum á þessum vettvangi þvi
reynsian hefur sýnt að íslenskir
vélstjórar standa erlendum stéttarbræðr-
um sínum jafnfætis ef ekki framar."
Hvernig er vélstjóranámið hérlendis
samanborið við nágrannalöndin?
„Það getur verið erfitt að bera saman
nám milli landa. Menn benda oft á
Danmörku og segja að þar taki vél-
stjórnarnám aðeins þrjú ár en fimm ár
hérlendis. I Danmörku er krafist sveins-
prófs í málmiðnaðargrein við upphaf
náms, skólinn er 10 mánuðir á ári og
hver kennslustund lengri. Við höfum
boriö námstímann saman og niður-
staðan er sú að í Danmörku tekur nám-
ið heldur lengri tíma en hér á landi."
Vélskólinn á háskólastig ef þarf
Finnst þér ástæða til þess að
skilgreina vélstjóranám sem nám á
háskólastigi?
„Vélstjóranám á hinum Norður-
löndum er talið á háskólastigi að hluta,
eða sem nemur allt að þremur árum.
Þegar íslenskir vélstjórar fara í háskóla-
nám, t.d. í tæknifræði í Danmörku,
kemur í ljós að menntun þeirra er mjög
GUFUKATLAR FRA BRETLANDI - ALLAR GERÐIR
KEMHYDRO - salan Snorrabraut 87 • 105 Reykjavík • Sími: 551 2521 • Fax 551 2075
VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FÁLKAi
1FARAR-
BRODDI
VEM og KEB verksmiöjurnar framleiöa allar helstu
stæröir og gerðir raf- og gírmótora fyrir iönaö,
skip, landbúnaö og ýmsar sérþarfir.
Höfum fyrirliggjandi allar algengustu stæröir
og geröir og útvegum alla fáanlega mótora
meö skömmum fyrirvara.
Veitum tæknilega ráögjöf við val á mótorum.
VEM og KEB - þýsk gæðavara á góöu verði!
RAFVELAVERK-
STÆÐI FÁLKANS
Mótorvindingar,
dæluviögeröir
og allar almennar
rafvélaviögeröir.
90ÁRK
Pekking Reynsla Þjónusta*
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 • 108 REYKJAVÍK
SIMI: 581 4670 • FAX: 568 5884
VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FÁLKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS
ÆGIR 31