Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1996, Side 33

Ægir - 01.01.1996, Side 33
þar sem krafist er tækniþekkingar og alhliða fagmenntunar. Þeir sem ekki vinna á sjó eru víða á verkstæðum, frystihúsum, í virkjunum, hjá vélasöl- um og allskyns umboðsmönnum fyrir tæki og vélar og fjöldi þeirra starfar hjá olíufélögunum. Við þurfum að kynna betur hlutverk vélstjóra og vélfræðinga og starfsvettvang þeirra." Varla við hæfi nema sterkra kvenna Nú skiptast félagar í Vélstjóra- félaginu þannig að 933 starfa á fiski- skipum, 168 á farskipum þar sem mest fækkun hefur orðið á undanförnum árum og 530 vélstjórar eru við önnur störf í landi. En hvernig er kynskipting innan stéttarinnar? Er þetta alfarið karlastarf? „Það munu þrjár konur hafa lokið námi úr Vélskólanum en í dag er ein kona í Vélstjórafélaginu. Það er Rann- veig Rist starfsmaður ÍSAL." Er þetta ekki kvennastarf að þinu mati? „Mörg störf sem vélstjórar og vél- fræðingar gegna eru auðvitað ekkert síður fyrir konur en karla en að vinna sem vélstjóri á fiskiskipi og sinna öllum þeim verkum sem krafist er þar held ég að sé varla við hæfi nema þá sterkra kvenna." Réði sig á kvenfélagsballi Helgi er að sjálfsögðu sjálfur mennt- aður vélstjóri og lauk minna mótor- námskeiði á ísafirði 1962 og 4. stigs prófi frá Vélskólanum 1970 og sveins- prófi og vélfræðiprófi 1973. Um svipað leyti lauk sjómennskuferli sem hófst þegar hann réðist sem kokkur á bátinn Vörð frá Grenivík. „Ég hitti skipstjórann á kvenfélags- balli og réði mig sem kokk á staðnum. Daginn eftir var ekki laust við að ég sæi eftir því en lét slag standa þó ég væri hrikalega sjóveikur en sjóveikin fylgdi mér ávallt nokkuð." Heigi stundaði sjó um árabil, sem kokkur fyrstu þrjú árin en síðar vélstjóri á bátum sem Gjögur á Grenivík gerði út og hétu Vöröur, Áskeli og Oddgeir. Seinast var hann á loðnuskipinu Hákoni. Af sjónum lá leiðin til tæknideildar Fiskifélags íslands en þar starfaði Helgi frá 1975 til 1983. „Það var mjög lærdómsríkur tími og í mínum augum er tæknideild Fiskifélagsins hreinasti fjársjóður. Þegar ég var aö vinna þarna var m.a. verið að mæla olíueyðslu fiskiskipa. Þessar mælingar leiddu til þess að olíueyðslumælar eru nú í vel flestum fiskiskipum en á grundvelli upp- lýsinga frá þeim á að vera hægt að draga verulega úr brennsluolíu- notkun skipanna, fyrst og fremst á siglingu. Það er illt til þess að vita hvernig starfsemi deildarinnar hefur verið skert vegna lækkandi framlaga hins opinbera en þarna eru unnin stórmerk vísinda- störf sem eru þjóðfélaginu öllu til mikilla hagsbóta. Þessi rannsóknarstörf eru ómetanleg og ég er ekki viss um aö menn viti hvað mikil verðmæti leynast hjá deildinni en hún er eini vísirinn að rannsóknastofnun fyrir útgerðin. Ráða- menn sýna þessari starfsemi því miður lítinn skilning." □ Núfer hver að verða síðastur! •ÓMalaus" ®viminni H,""*«onarse.dis * °S a._- .., st °anast fynr jol. TryggiQ ykk . siðustu G,tt ~-J^!^ökunUmi ÆGIR 33

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.