Ægir - 01.07.1996, Síða 8
Vélar eru okkar fag
Afltækni hf. býður allan vélbúnað, frá stjórn í brú og aftur í skrúfu
„Við getum ekki verið annað en bjartsýnir. Við teljum að endurnýjun
fiskiskipa standi fyrir dyrum. Við getum boðið allan vélbúnað, allt frá
stjórn í brú aftur ■ skrúfu. Við er með þekkt og traust merki sem er
komið meira en 100 ára reynsla á,“ sagði Aage Petersen, annar eig-
enda Afltækni ehf., í samtali við Ægi.
Afltækni er ekki ýkja gamalt fyrir-
tæki en stendur þó á gömlum merg.
Það eru bræðurnir Gunnar og Aage
Petersen sem eiga það og reka og hafa
nýlega fært út kvíarnar og keypt mjög
aukið húsnæði fyrir starfsemina á
horni Barónsstígs og Hverfisgötu.
„Þetta þýðir að við höldum lager
okkar sjálfir í auknum mæli í stað þess
að liggja með varahlutina í Tollvöru-
geymslunni og getum þannig þjónað
okkar viðskiptavinum miklu betur,"
sagði Gunnar Petersen. Þeir bræður
eru ekki ókunnugir vélasölu og þjón-
ustu af þessu tagi. Aage er vélstjóri að
mennt og starfaði áratug hjá H. Ben,
en keyrði áður vélar í virkjunum og
togurum, en Gunnar starfaði í rúm 20
ár hjá Heklu hf., síðast sem fram-
kvæmdastjóri Caterpillar.
Haustið 1982 hófu þeir bræður sam-
starf og gerðust umboðsmenn fyrir
MAN B&W Diesel A/S er þeir stofnuðu
fyirtækið MAN B&W dísilvélar sf. Til-
efnið var að MAN A. G. í Þýskalandi
hafði keypt B&W Diesel A/S í Dan-
mörku ásamt dótturfyrirtækjunum
Alpha Diesel A/S og Holeby Diesel A/S
og vildu menn hafa umboðið á einni
hendi hér á íslandi. Það var síðan ekki
fyrr en 1993 sem Afltækni var stofnuð.
Sala véla og vélbúnaðar í skip af
ýmsum stærðum og gerðum hefur
ávallt verið það helsta sem Afltækni
fæst við ásamt útvegun varahluta og
þeirri þjónustu sem því fylgir. Afl-
tækni ehf. hefur ekki rekið sitt eigið
verkstæði en sérhæfð verkstæði ann-
ast yfirleitt viðgerðir og stærstu fyrir-
tæki í útgerð reka sín eigin verkstæði.
„Við höfum mikið skipt við Gjörva
í Reykjavík og Framtak í Hafnarfirði
en okkar hlutverk er meira fólgið í út-
vegun varahluta og ráðgjöf við við-
skiptavini. En við látum aðra sjá um
eiginlegar viðgerðir," sagði Aage.
Brœðurnir Gunnar og Aage Petersen reka
saman fyrirtœkið Afitœkni.
í dag framleiðir MAN & BW 24
gerðir af tvígengisvélum frá 1.480
hestöflum upp í 93.120 hestöfl. Þeir
framleiða 12 gerðir af afgastúrbínum
fyrir vélar frá 400 hö. til 33.300 hö.
Þeir framleiða 8 gerðir af fjórgengis-
vélum frá 610 hestöflum upp í 25.740
hestöfl.
Nefna mætti fjölda skipa sem Afl-
tækni hefur selt vélar eða stýrisbúnað
í. MAN vélar eru mjög þekktar og
hafa einkum verið teknar í stærri skip
þó hægt sé að fá vélbúnað fyrir báta
og minni skip frá fyrirtækinu. MAN
vélar eru í fragtskipum, íslensku varð-
skipunum, hafrannsóknaskipunum,
ferjunni Herjólfi og aragrúa fiskiskipa
en samtals eru um 100 vélar í keyrslu
í flotanum sem fyrirtækið sér um.
Stærsta vél í fiskiskipi er í Sunnu SI
67 sem er 3.600 ha. MAN. Stærsta vél
í fragtskipi sem Afltækni hefur selt er
í nýja flutningaskipinu sem Eimskip
er að láta smíða fyrir félagið í Pól-
landi og var afhent í lok júní. Sú vél
er 9.500 hestöfl, 7 metrar á lengd,
rúmir 4 metrar á hæð og vegur 220
tonn. Þetta verður jafnframt stærsta
vél af þessari gerð í íslensku skipi en
umrætt skip er 12.500 tonn og er
fyrsta nýsmíði sem Eimskip ræðst í
frá 1971.
„Það eru ef til vill aðrir framleið-
endur sem eiga fleiri vélar í drift hér á
landi en við, en ef mælt væri í hest-
öflum værum við með þeim stærri ef
ekki stærstir," segir Gunnar.
Afltækni seldi á síðasta ári 'niður-
færslugír og skrúfubúnað í Venus HF,
sem nýlega var endurbyggður, og á
þesu ári samskonar búnað í Örn KE
sem nú er í endurbyggingu. Fjögur skip
sem komu til landsins nýlega eru öll
með aðalvélar frá MAN B&W diesel.
Þetta eru Antares VE 18, Elliði GK 445,
Erik BA 204 og Helga Björg HU 7.
Afltækni hefur ekki selt mjög mikið
af vélum í smábáta sem hefur fjölgað
mjög undanfarin ár.
„Við seldum vél í lítinn bát norður
á Kópaskeri í kringum 1982 og síðan
höfum við aldrei heyrt í honum svo
við slógum á þráðinn til að vita
hvernig gengi. Hann var ógurlega
ánægður en hann sá enga ástæðu til
að hringja í okkur því það bilaði
aldrei neitt og vélin hafði gengið eins
og klukka í tæp 13 ár."
Afltækni selur einkum vélar í skip
og báta, bæði aðalvélar og ljósavélar.
Sá hluti markaðar þeirra sem er á
þurru landi er einkum í sambandi við
rafstöðvar og vararafstöðvar. □
8 ÆGIR