Ægir - 01.07.1996, Blaðsíða 10
VIÐ NANARI ATHUGUN
Mikil endurnýjun í
fiskmjölsverksmiðjum
Mikil endurnýjun hefur að undanförnu átt sér stað í íslenskum fiskmjölsverksmiðj-
um og auk þess hafa tvær nýjar verksmiðjur, á Fáskrúðsfirði og í Helguvík, tekið til
starfa. I farvatninu er stækkun á verksmiðju Faxamjöls í Reykjavík og verksmiðja Har-
aldar Böðvarssonar hf. á Akranesi verður endurnýjuð og stækkuð. A báðum þessum
stöðum verður beitt loftþurrkun til þess að framleiða fiskmjöl í hæsta gæðaflokki en
fimm aðrar verksmiðjur ráða við slíka framleiðslu nú þegar. Það eru verksmiðjurnar í
Krossanesi, SR á Seyðisfirði, Fiskmjöl og Lýsi í Grindavík, Hraðfrystihús Eskifjarðar
á Eskifirði og Síldarvinnslan í Neskaupstað. Loftþurrkun er forsenda þess að fram-
leiða mjöl af svokölluðum LT-gæðum sem er þurrkað við lægra hitastig en kleift er
við hefðbundna eld- eða gufuþurrkun.
Þessi endurnýjun var að flestra mati
löngu tímabær því til skamms tíma
voru margar verksmiðjanna að stofni
til lítið breyttar frá síldarárunum.
Þessi þróun helst og í hendur við þá
endurnýjun sem nú er í gangi í loðnu-
flotanum og mikið hefur verið um-
rædd. Segja má að verksmiðjurnar
hafi þrýst á þá breytingu sem þar er í
gangi því það kemur fyrir lítið að hafa
tök á að framleiða hágæðamjöl ef
hráefnið sem kemur að landi er ekki
fyrsta flokks. Þess vegna er sú
kælitankavæðing, sem nú fer fram í
íslenska nótaflotanum, bein afleiðing
af tækniframförum í verksmiðjunum.
Þegar þetta er ritað er sumarvertíð á
loðnu farin af stað með fljúgandi
starti þar sem allur flotinn fyllti sig á
fyrsta sólarhring. Þarna er enn ein
forsendan fyrir aukinni endurnýjun í
nótaflotanum og verksmiðjunum.
Fyrir tiltölulega fáum árum voru nóta-
veiðar árstíðabundið verkefni sem bátar sinntu um takmarkaðan tíma. Sumarloðnu-
veiðar úr loðnustofninum, sem er mjög sterkur um þessar mundir, eru einn þáttur,
haustveiðar á síld annar, vetrarloðnuveiðar sá þriðji og vorveiði úr norsk-íslenska síld-
arstofninum sá fjórði. Við þetta má svo bæta vangaveltum um kolmunnaveiðar og til-
raunaveiðar Jóns Sigurðssonar GK á laxsíld suður á Reykjaneshrygg sem að vísu
gengu ekki vel í þetta sinn. Allt ber þetta að sama brunni. Nótaveiðar eru orðnar
heilsársverkefni fyrir vel búin skip og allt bendir til þess að verksmiðjur með gott
geymslurými geti nú starfað margfalt lengri tíma af árinu en áður þótti raunhæft.
Faxamjöl í Reykjavík er ein þeirra verksmiðja
sem hyggja á stækkun.
ÖFramherji hf., sem er útgerð-
arfélag í eigu Samherja á Ak-
ureyri og færeyskra samstarfsaðila,
leitar verðtilboða í smíði stórs og öfl-
ugs fjölveiðiskips. Skipið er hannað
af Skipatækni og skal vera 73 metra
langt og 14.5 metra breitt með 6.000
hestafla vél. Það á að geta veitt í
flottroll, botntroll og nót og burðar-
geta þess verður 2.400 tonn af
ókældu hráefni til bræðslu.
OVélasalan hf. kaupir 40%
eignarhlut í þeim hluta
Nauta-skipasmíðastöðvarinnar í
Póllandi sem annast endurbygg-
ingar og nýsmíði skipa. Þetta ger-
ist í tengslum við endurskipulagn-
ingu stöðvarinnar í kjölfar einka-
væðingar. Á fjórða tug íslenskra
fiskiskipa hefur verðið breytt í
Nauta-stöðinni á undanförnum
árum og fimm nótaskip fara þang-
að í breytingar í haust. Vélasalan
hf. hefur um árabil verið umboðs-
aðili Nauta hér á landi.
DÁkveðið að breyta Bergi VE
fyrir 150 milljónir í Nauta-
skipasmíðastöðinni í Póllandi. Breyt-
ingarnar verða áþekkar þeim sem
gerðar eru á Erni KE. Skipt verður
um framskipið svo allt fyrir framan
brú verður nýtt.
ESæborg GK frá Grindavík
ferst 165 sjómílur norðaustur
af Norðfjarðarhorni á heimleið af
síldveiðum með um 60 tonna farm.
Skipið sökk mjög skyndilega en
áhöfnin komst öll í báta og var
bjargað um borð í Jónu Edvalds SF.
Nótaskipið Jón Sigurðsson
GK fer á tilraunaveiðar á
laxsíld á Reykjaneshrygg. Flottroll
er notað við veiðarnar og ef vel
gengur er búist við að Antares VE
fari einnig til slíkra veiða. Laxsíld-
in er smár fiskur sem talin er henta
vel til bræðslu en jafnframt er talið
að mikið magn af henni sé innan
og utan íslenskrar lögsögu. Ekki er
vitað til þess að íslenskt skip hafi
áður reynt veiðar á laxsíld.
1 0 ÆGIR