Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1996, Síða 19

Ægir - 01.07.1996, Síða 19
yfirburði stærri skipin hafa en Jón var mjög öflugt skip. Við höfum ekki enn siglt Elliða fulllestuðum en á heimleiðinni dældum við sjó í alla tankana til að sjá hvernig hann lægi og vorum mjög ánægðir." Lítið atvinnuleysi í áhöfn Elliða eru 14 menn. Er eftir- sótt að komast um borð í loðnuskip? „Það er alltaf mjög eftirsótt og mikið spurt. Við erum ekki með kerfi um frí með reglulegu millibili. Ef menn vilja vera um borð alla vertíðina, þá er það þeirra mál. Við eigum fjóra frídaga í mánuði hið minnsta." Er atvinnuleysi meðal skipstjórnar- manna? „Við verðum ekki varir við það í fé- lögunum. Menn ráða sig frekar sem há- seta. Það er þó algengara á togumm en nótabátum held ég að margir á dekkinu séu með full réttindi." Guðlaugur er formaður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Öldunnar í Reykja- vík og hefur verið í þrjú ár. Hvert er hans álit á þeirri þróun sem orðið hefur innan Farmanna- og fiskimannasam- bandsins með því að vélstjórar sögðu sig úr sambandinu? „Félögin eiga að vera færri og stærri. Samstaða stórra félaga er öflugra vopn en mörg smærri. Ef grundvöllur er fyrir sameiningu á ný ætti að stefna að henni. Það verður engum einum kennt „Okkur finnst verðið auðvitað alltaf of lágt. Við viljum helst sjá tengingu við heimsmarkaðsverð, að minnsta kosti einhverja markaðstengingu hér innan lands." um hvernig fór. Stjórnir beggja félag- anna tóku rangt á málum og því fór sem fór." Versta reynslan Kannski má segja að fall sé fararheill því 1978 kviknaði í Dagfara út af Pat- reksfirði. Áhöfnin yfirgaf skipið og var bjargað um borð í Runólf SH en Dagfari var síðan dreginn logandi inn á Patreks- fjörð þar sem var slökkt í honum. Skipið var mjög bmnnið en það var síðan end- urbyggt og bætt og Guðlaugur var síð- an skipstjóri á Dagfara til 1984 og þetta er í eina skiptið sem skipi undir hans stjórn hefur hlekkst á. „Þetta var versta reynsla sem ég hef upplifað til sjós og eldur er martröð margra sjómanna. Mér finnst ég, að þessu frátöldu, hafa verið heppinn." Næsta skip var Jón Finnsson eldri sem margir muna eftir og var seldur til Chile. Guðlaugur stýrði honum og einnig Jóni Finnssyni yngri sem kom í stað hins. í millitíðinni leysti hann af á ýmsum skipum og segir það hafa verið mjög skemmtilega reynslu. „Mér fannst afar skemmtilegt að kynnast sjómönnum frá ýmsum stöð- um og viðhorfum þeirra. Ég var með Þórshamar GK um tíma og svo ísleif VE og kunni afar vel við þá hressu Vest- manneyinga sem þar voru um borð." Ekkert eins spennandi og nóta- veiðin 1987 kom nýr Jón Finnsson (nú Hersir ÁR) og Guðlaugur stýrði honum á loðnu og rækju þar til hann tók við Keflvíkingi fyrir þremur árum. Þannig hefur hann reynslu af mörgum skipum og margskonar veiðiskap en segist alltaf hafa mest gaman af nótaveiði. „Það er ekkert eins spennandi og nótaveiðin. Henni fylgir ákveðin spenna sem maður sækir alltaf í aftur og aftur." En hvert er leyndarmálið á bakvið að vera góður og aflasæll skipstjóri. Eru þetta yfirnáttúrlegir hæfileikar? „Maður þarf að kunna vel á tækin sem maður hefur í höndunum. Góð áhöfn, sem er tilbúin að taka á með ÚTGERÐARMENIM • SJÓMENN AÐSTANDENDUR SJÓMANNA Nýtið ykkur þjónustu strandarstöðvanna. Hringið og pantið samtal um eftirtaldar stöðvar: Reykjavík Radíó (Gufunes) Sími: 551 1030/551 6030 skip Auk símtalaafgreiðslu hlusta strandarstöðvarnar ó Sími: 567 2062 bifreiðar kall- og neyðartíðnum skipa og bifreiða, rós ló, ísafjöröur Radíó Simi: 456 3065 2182 KHz og 2790 KHz, allan sólarhringinn, alla Siglufjörður Radió Simi: 467 1108 daga órsins og annast fjarskipti við leit og björgun. Nes Radíó Sími: 477 1200 Hornafjörður Radíó Sími: 478 1212 SJÓMENN! MUNIB Vestmannaeyjar Radíó Sími: 481 1021 1 TILKYNNINGASKYLDUNA ÆGIR 19

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.