Ægir - 01.07.1996, Qupperneq 21
að borga 45 krónur fyrir kílóið og það
hefur komið fyrir að menn hafa verið að
selja hann slægðan úr landi í gámum og
fá gott verð í fyrstu en svo hrapar verðið
ef framboðið er of mikið og þá standa
þeir eftir með minna en það sem við
hefðum borgað þeim. Þá missa menn á-
hugann á veiðunum og hætta þeim.
Betra væri að stýra þessu jafnt og þétt inn
á markaðinn."
Um þetta leyti í fyrra var háfavinnsla í
gangi hjá Fiskeyri en nú hefur háfurinn
brugðist og ekkert komið á land enn.
Stefán og Þórður eru samt rólegir og segja
að enn sé nægur tími og segjast búa að
því að hafa fryst dálitla loðnu í vetur. En
hver hefur aðstoð hins opinbera verið við
þetta þróunarstarf?
„Aðstoðin hefur einkum verið í formi
hvatningar og ráðlegginga. Við höfum
engan styrk fengið en Hafrannsókna-
stofnun hefur veitt okkur ráðgjöf og upp-
lýsingar en þar er ekki nægilega mikið
vitað um lífshætti háfsins. Aflakaupa-
bankinn var okkur mikil stoð. Bankinn
keypti háf af bátum meðan hann var og
hét og Halldór Þorsteinsson hvatti okkur
til dáða."
Háfurinn sem er á gmnninu er sérstak-
ur stofn en úti á dýpra vatni finnast
margar fleiri tegundir háfa og er svartháf-
ur þeirra þekktastur en í lifur hans er eft-
irsótt efni, squalen sem þykir afar gott til
snyrtivöru- og lyfjagerðar. Alls hafa 11
tegundir af gaddháfaætt fundist við ís-
land. Skotar, Norðmenn og írar veiða
háfinn á línu og ná allt að 100 tonnum á
viku. Háfsaflinn í Norður-Atlantshafi hef-
ur farið í um 50 þúsund tonn á ári.
„Markaðurinn er traustur fyrir þennan
venjulega háf en svartháfurinn er neyslu-
vara líka. Hann er hinsvegar ólíkur hin-
um og því þarf að finna nýjan markað
fyrir hann sem við þekkjum ekki. Við
höfum prófað að vinna svartháf og þetta
sýnist vera ágætur fiskur en við þekkjum
ekki markaði fyrir hann."
En hvernig myndu Fiskeyrarmenn
vilja sjá aðstoð við starf eins og það sem
þeir hafa unnið?
„Best væri auðvitað ef einhver sæi sér
fært að styrkja þróunarstarf af þessu tagi.
Við höfum ekki bolmagn til að standa í
eigin útgerð og kannski væri skynsamlegt
að Hafró væri gert kleift að gera út skip
til tilraunaveiða. Bæði gaddaskata og háf-
ur eru utankvótategundir og hrein viðbót
við afurðir okkar."
Væri ekki ráð að fá Hafró til þess að
rannsaka háfinn sérstaklega?
„Það er ekki gott að segja. Þegar Hafró
fer að rannsaka hlutina þá komast þeir
alltaf að því að stofninn sé ofveiddur og
síðan er settur kvóti á allt saman." □
Enginn bátur stundar beinlínis háfaveiðar eins og er en helst virð-
ist von að hann veiðist grunnt við árósa við suðurströndina seinni
hluta sumars
í/ftKK/MKHKVV
VÉLSTJÓRAtt
Sem aðilar að
alþjóðlegu þjónustuneti
TURBONED B/V,
bjóðum við varahluti og
þjónustu fyrir BROWN
BOVERI afgastúrbínur.
Eigum á lager eða útvegum fljótt helstu slithluti í
flestar gerðir BBC og NAPIER túrbína. Tökum
notaðar legur upp í nýjar.
Útvegum skiptihluti, s.s. uppgerða rótora o.fl.
Allir uppgerðir hlutir eru viðurkenndir af Lloyds.
Gerið verðsamanburð!
MDvélashf.
r“»B
0
°*ieo
FISKISLÓÐ 135-B, POSTHOLF 1562, 121 REYKJAVIK
SÍMI561 0020, FAX 561 0023
{fpSJÓDÆLUR
Með eða án
rafmótors eða
segulkúplingu
Grandagarði 5, 101 Reykjavík, s: 562 2950, fax: 562 3760
ÆGIR 21