Ægir

Årgang

Ægir - 01.07.1996, Side 54

Ægir - 01.07.1996, Side 54
ara. Þetta er vegna lágrar sólarhæð- ar. Engrar ósóneyðingar hefur orðið vart við miðbaug þar sem sólin er hátt á lofti allt árið um kring. „Ástæða þess að við höfum litla aukningu séð í útfjólublárri geislun er sú að góðar mælingar hófust of seint og því skortir allan saman- burð," segir Stolarski sem var í hópi þeirra vísindamanna sem fyrir 20 árum settu fram þá kenningu að til- tekin efnasambönd, sérstaklega klórsameindir, gætu eytt ósóni úr andrúmsloftinu ef efnin kæmust nógu hátt upp í gufuhvolfið. Vegna þess að útfjólublá geislun sveiflast mjög mikið til af náttúrleg- um aðstæðum er ómögulegt að greina marktækar breytingar á stutt- um tíma. Þótt margt bendi tii þess að ósónlagið hafi minnkað benda engar marktækar mælingar til aukn- ingar útfjólublárrar geislunar á jörðu niðri. „Sú breyting sem ósónaukningin ætti að leiða til er minni er minnsta frávik í mælingum," segir John E. Frederick lofteðlisfræðingur við Chicago-háskóla. „Fólk hefur áhyggjur ef útfjólublá geislun mælist fáeinum prósentum hærri en staðreyndin er sú að 20% aukning þykir ekki tiltökumál og það eru sveiflur af náttúrlegum völdurn." Fredericks segir að væri 20% aukning útfjólublárra geisla skaðleg lífi væri ekkert líf sunnan Florida. Mengunin hjálpar Stolarski, Frederick og fleiri vís- indamenn sem rannsaka mengun andrúmsloftsins staðhæfa að þó til væru góðar mælingar á útfjólublárri útgeislun á jörðu niðri mörg ár aftur í tímann væri ekki víst að nein aukning kæmi í ljós. Tvennt vinnur gegn aukinni geislun. Annarsvegar aukin skýjamyndun sem stafar af hærri hita á jörðinni vegna gróður- húsaáhrifa og hinsvegar aukin mengun í neðri loftlögum af völd- um mannsins. Þetta tvennt telja þeir geti vegið upp hugsanlegar skemmdir á ósónlaginu og hlíft íbú- um jarðar við vaxandi útfjólublárri geislun. Þetta er reyndar sú niðurstaða sem 150 vísindamenn frá 28 lönd- um komust að í einni viðamestu rannsókn á áhrifum ósóneyðingar sem hingað til hefur farið fram. í skýrslu rannsóknarinnar: Scientific Assessment of Ozone Depletion 1991 segir : „ Minni geislun af völd- um UV-B geisla, sem rekja má til aukinnar loftmengunar, upphafi iðnbyltingar, vegur trúlega upp á móti aukningu sömu geisla vegna ósóneyðingar." í stórborgum er umtalsverð ósón- mengun í neðri loftlögum vegna út- blásturs bíla og á venjulegum degi í Los Angeles dregur þetta úr útfjólu- blárri geislun um 6-9% prósent og allt að 20% sé skýjað. Ef ósónlagið væri ekki jörðinni til hlífðar væri hún óbyggileg. Þeir út- fjólubláu geislar sem sólin stafar frá sér væru banvænir öllu lífi næðu þeir til yfirborðsins. Mannkynið hefur brugðist hart við þeirri hættu sem steðjaði að. Klórflúorkolefni notuð í kælimiðla, einangrun og eitt sinn í úðabrúsa hafa verið bönnuð og framleiðslu þeirra hætt. Hraðar hefur dregið úr framleiðslu og sölu en upphaflega var gert ráð fyrir í umræddum Montreal-sátt- mála. Ósón er náttúrleg auðlind Eyðing ósóns í andrúmsloftinu er ekkert nýtt fyrirbæri heldur hefur Suva Umhverfisvæn kæliefni sem veita heildarlausn í stað R-12: —*■ Suva®MP39 (R-401A) —► Suva®MP66 (R-401B) —*■ Suva® 134a (R-134a) í stað R-502: —*■ Suva® HP80 (R-402A) —* Suva® HP81 (R-402B) —*• Suva® HP62 (R-404A) í stað R-22: —* Suva®HP62 (R-404A) —* Suva®9000 (R-407C) —* Suva®9100 (R-410A) Lekaleit: Fluoro-Dyr búnaður til lekaleitar, byggður á sporefnum. Sími 552 0000 ® Skrásett vörumerki DuPont Ózón er svo fágætt efni að ef andrúmslofti jarðar væri pressað saman uns þaö væri 8 kílómetra þykkt væri ózónlagið aðeins tæplega hálfur sentimetri. 54 ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.