Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1996, Síða 58

Ægir - 01.07.1996, Síða 58
Upphaf fiskveiða við ísland Jón Þ. Þór Aðstæður allar ollu því að fisk- veiðar urðu mikilvægur bjargræð- isvegur Islendinga þegar á land- náms- og þjóðveldisöld. Land- námsmenn, sem frá Noregi komu, voru flestir vanir fiskveið- um af heimaslóðum, þar sem fisk- Á meðan urðu menn að bjargast sem best af landsins gæðum og þar hlutu fiskveiðar og aðrar sjávarnytjar að vega þungt. Veiðidýr voru hér eng- in er landnámsmenn bar að garði, önnur en fuglar, og þótt fugla- og eggjatekja hafi vafalítið verið drjúg búbót þegar á fyrstu árum íslands- byggðar er einsætt að hún gat aldrei dugað fólki til lífsbjargar allan ársins hring. Sama máli gegndi um fisk í ám og vötnum, enda varð hann ekki veiddur nema að sumarlagi. Engu að síður er ljóst, að sjávar- nytjar hljóta að hafa verið mikilvægur bjargræðisvegur þegar f upphafi ís- landsbyggðar og nánast undirstaða mannlífs í einstökum landshlutum. Verður nú hugað nánar að nokkrum frásögnum um sjávarútveg í íslensk- um miðaldaheimildum. Sjávarútvegur á landnáms- og þjóðveldisöld í fornum ritum íslenskum eru nokkrar frásagnir, er benda til umtals- verðra fiskveiða á fyrstu öldum ís- landsbyggðar. Flestar eru þær harla stuttorðar, en varla tilviljun að þær vísa flestar til þeirra landshluta, sem frá alda öðli hafa verið mestu útgerð- arsvæði landsins: Vestfjarða, Snæfells- ness, Suðurnesja og Vestmannaeyja. Engin ástæða er til að draga trú- verðugleika þessara frásagna í efa, en við þær, sem eru í íslendinga sögum, verður þó að viðhafa sömu aðgát og jafnan, er sögurnar eru notaðar sem ur var gildur þáttur í mataræði fólks. Þeir fluttu að sönnu með sér búfénað hingað til lands, sauðfé, geitur, nautgripi og hross, en sá bústofn var lítill í upphafi og nokkur tími hlýtur að hafa liðið áður en hann náði að tímgast svo að fólk gæti lifað af afurðum hans að verulegu leyti. heimildir. Þær eru flestar ritaðar tveim til þrem öldum eftir að atburðirnir, sem þær skýra frá, áttu sér stað. Þar með er ekki sagt, að aldarfarslýsingar og frásagnir af atvinnuháttum séu ótraustar eða beinlínis rangar, en á hinn bóginn er oft erfitt að meta, hvort þær eiga við sögutímann eða ritunartíma sagnanna, þ.e.a.s. 9., 10. og 11. öld, eða 13. og jafnvel 14. öld. f mörgum tilvikum skiptir þetta þó litlu máli. Atvinnuhættir breyttust lítt frá einni öld til annarrar og líklegt má telja, að söguritari, sem í upphafi færði í letur frásagnir af útræði og sjó- sókn öðru hvoru megin við aldamót- in 1000, hafi getað lýst því, sem hann sjálfur þekkti, án þess að víkja um of frá því sem tíðkaðist á sögutímanum. Elsta heimild um fiskveiðar hér á landi mun vera hin kunna frásögn Landnámabókar af vetursetu Hrafna- Flóka og förunauta hans í Vatnsfirði á Barðaströnd: "Þá var fjörðrinn fullr af veiðiskap, ok gáðu þeir eigi fyrir veið- um at fá heyjanna, ok dó allt kvikfé þeira um veturinn." Þessi frásögn hefur oft verið höfð til marks um fyrirhyggjuleysi land- könnuðarins Flóka Vilgerðarsonar, enda lítt búmannlegt að gleyma því að heyja handa kvikfénu vegna áhuga á veiðiskap. En Flóka var nokkur vor- kunn. Hann hafði áttað sig á því, að erfitt yrði að lifa af veturinn án þess að afla matarbirgða og þær var ekki að hafa nema með því að veiða fisk. Því miður greinir höfundur Landnámu Jón Þ. Þór sagnfrœðingur. hins vegar ekki frá því, hvort ferða- langarnir reru til fiskjar eða reyndu fyrir sér í Vatnsfjarðará. En víkjum nú að því, sem fornrit greina frá fiskveiðum á Vestfjörðum á landnáms- og þjóðveldisöld. Einna þekktust frásagna úr Vestfirðinga- fjórðungi mun vera sagan í Landnámu af Þuríði sundafylli og Völu-Steini, syni hennar. Þau námu land í Bolung- arvík og setti Þuríður Kvíarmið yst í ísafjarðardjúpi. Meira segir ekki af út- vegi þeirra mæðgina, en sú athöfn Þuríðar að setja, þ.e. ákvarða, miðið, og taka til þess „á kollótta af hverjum bónda í ísafirði", þ.e. ísafjarðardjúpi, getur bent til þess að allmikið hafi þá þegar verið róið í Djúpið og það verið orðið bændum sú gullkista, sem það var allt fram á þessa öld. Ber þá og að hafa í huga, að ísafjarðardjúp mun hafa verið numið fremur seint, og sennilega ekki fyrr en árunum 915-920. Má þá vænta þess, að Þuríð- ur hafi ekki sett Kvíarmið fyrr en eftir þann tíma, jafnvel ekki fyrr en um miðja 10. öld. 58 ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.