Ægir - 01.01.1998, Blaðsíða 6
Guðrún Eyjólfsdóttir tók á síðasta
ári til starfa í sjávarátvegsráðu-
neytinu og eitt afhennar aðal verk-
efni er umsjón með starfsfrœðslu-
námskeiðum fiskvinnslunnar og önn-
ur verkefni sem snúa að menntamál-
um í sjávarútvegi. í samtali við Ægi
segist hún þess fullviss að t nánustu
framtíð eigi eftir að verða umtals-
verðar framfarir í menntunarmálum
ígreininni enda muni hún kalla í
auknu mœli eftir vel þjálfuðu fólki
til þeirra sérhœfðu starfa sem vinnsl-
an er.
Gttðrt'ni Eyjólfsdóttir við vinnu sína í sjávarútvegsráðuneytinu. Hún segir mörg verkefni
unnin innan veggja ráðuneytisins sem séu engu minna mikilvœg en stóru deilumálin
sem snúa að fiskveiðistjórimn og kvótaúthlutun.
Trúi því að umræða um
menntun í sjávarútvegi eigi
eftir að vaxa verulega
- segir Guðrún Eyjólfsdóttir í sjávarútvegsráðuneytinu
„í starfsfræðslunni felst námskeiða-
hald vítt og breitt um landið og er þar
farið yfir hvaðeina sem viðkemur
vinnslunni. Þegar nýtt starfsfólk hefur
unnið í fjóra mánuði í vinnslu nýtur
það kauptryggingar og á rétt á að fara
á námskeið innan árs. Það fær launa-
hækkun þegar það hefur lokið grunn-
námskeiðinu," segir Guðrun, aðspurð
um uppbyggingu starfsfræðslunnar.
Verulegt samstarf er með Norður-
löndunum í málum er varða sjávarút-
veginn, ekkert síður en öðrum þátt-
um. Guðrún segir að á þeim vettvangi
séu mörg spennandi verkefni og sem
dæmi um þau nefnir hún verkefni
sem hrundið hefur verið af stað og
snýr að þeim upplýsingum sem neyt-
6 ÆGIR --------------------------
andi framtíðarinnar mun sækjast eftir
varðandi bakgrunn þeirrar vöru sem
hann er að kaupa.
„Með þessu er verið að reyna að
gera sjávarútveginn og framleiðsluvör-
urnar enn sýnilegri en áður. Þetta tel
ég vera mjög athyglisvert og sama má
segja um verkefni sem danskt ráð-
gjafafyrirtæki mun vinna nú í vetur en
þar verður leitast við að sjá fyrir um
hvaða kröfum norrænn sjávarútvegur
þarf að svara á næstu fimm árum.
Það sem kemur út úr þessum verk-
efnum held ég að geti nýst okkur vel,
meðal annars við að skipuleggja
menntamálin, - ef við trúum grein-
ingu á þeim kröfum sem til okkar
verða gerðar. Þá fyndist mér a.mk.
skynsamlegt að bregðast þannig við,"
segir Guðrún.
Snýst um fleira en
fiskveiðistjórnun og kvóta
Guðrún viðurkennir að í hugum
margra snúist ímynd sjávarútvegs-
ráðuneytisins um það eitt að sinna
fiskveiðistjórnun og úthlutun kvóta.
Vissulega sé það verkefni stórt en engu
að síður séu mörg verkefni inni í ráðu-
neytinu engu minna mikilvæg.
„Núna á „Ári hafsins" þá vil ég að
við getum náð upp á yfirborðið í um-
ræðunni mörgum öðrum málum en
þessu stóra deilumáli um fiskveiði-
stjórnun og kvóta. Menntamálin eru
ekki hvað síst málefni sem má fá meiri