Ægir - 01.01.1998, Qupperneq 34
Góð hugmynd og útsjónarsemi
geta oft lagtgrunn að traustum
fyrirtcekjum. Það samiast hjá
fyrirtœki Gunnars Brynjólfssonar,
Vélsleðaþjónustunni, en þrátt fyrir
þetta nafn fyrirtœkisins hafa
vélsleðarnir algerlega vikið fyrir
framleiðslu og uppsetningu á
háþrýstiþvottabúnaði undir
framleiðsluheitinu Ice-Clean.
Búnaðurinn er sérhannaður fyrir
sjávarútveginn, bœði skip og
fiskvinnslur, jafnt sem
kjötvinnslufyrirtœki. Á fáum árum
hefur fyrirtœkið náð góðri fótfestu á
innanlandsmarkaði og stigið þegar
skrefí útflutningi á þessutn
séríslenska búnaði, bœði til Hollands
og Noregs.
Stund milli stríða í verkefnum hjá starfsmönnum Vélsleðaþjónustunnar sem hafa mikið
að gera við uppsetningu á Ice-Clean búnaði út um landið. Frá vinstri: Gunnar Brynjólfs-
son, Tryggvi Aðalbjömsson og Viðar Sigþórsson. Gunnar heldur hér á sápugrindinni en
með henni má á einfaldan hátt skipta milli þvottavatns, sápublöndu og sótthreinsiefnis.
Myncl: IÓH
Ice-Clean háþrýstiþvottakerfi:
Islenskt hugvit í sinni bestu mynd
Ice-Clean er öflugt háþrýstiþvotta-
kerfi sem samanstendur af dælum,
lögnum og þeim fjölda úttaka sem
hæfilegur er á hverjum stað.
„í raun er kerfið klæðskerasaumað
fyrir hvern og einn en að grunni til er
sama kerfið notað hvort heldur er um
að ræða báta, fiskvinnsluhús eða kjöt-
vinnslur," segir Gunnar í samtali við
Ægi.
Háþrýstiþvottabyssur eru tengdar
við kerfið og með einföldum stilling-
um er hægt að fá sápublöndu, sótt-
hreinsiefni eða þvottavatn. Ef frá eru
taldar háþrýstidælurnar sjálfar og
þvottabyssurnar má segja að starfs-
menn fyrirtækisins smíði allt sem nota
þarf í kerfið, þannig að mikil vinna
skapast hér innanlands við þennan
búnað.
Gunnar segir að rekja megi upphaf-
ið að þessari vinnu til ársins 1992 en
þá var byrjað að leita til hans eftir við-
gerðum á háþrýstimótorum og smám
saman fór áhuginn að beinast að þess-
um búnaði og notkun hans hjá fyrir-
34 M3í\n -------------------------
tækjum og þar með hófst þróun á Ice-
Clean kerfinu. Vélsleðaþjónustan er í
nánu samstarfi við Olís hf. um sölu á
kerfunum og stærstur hluti kaupenda
kaupir jafnframt öll þvottaefni frá Olís
og fær þannig kerfi, þvottaefnin og
ráðgjöf um þvott hjá sömu aðilum.
„Ég sá fljótt að það var óplægður
markaður í fiskvinnslu- og matvæla-
fyrirtækjunum enda hafði víða verið
lítið skipulag á þessum hlutum. Út-
gangspunkturinn var að velja í þetta
búnað sem væri sterkur og stæðist álag
Gísli Sverrisson, við nýjan og fullkominn
rennibekk þar sem framleiddir eru hlutir í
Ice-Clean kerfin.
án mikilla bilana. Síðan hófst smíðin
og í dag höfum við náð til 40-50
fiskvinnslufyrirtækja og einnig eru
Ice-Clean kerfi komin í mörg skip og
báta. I gegnum samstarf okkar við Olís
komumst við líka í samband við aðila
í Hollandi og þar höfum við sett upp
kerfi. Nýjast á erlendum vettvangi er
svo útflutningur til Noregs. Mér sýnist
því miklir möguleikar vera fyrir hendi
í framhaldinu og mikil verkefni fram-
undan en okkar markmið er að sinna
erlendu verkefnunum samhliða mark-
aðnum hér heima. Hann verður alltaf
okkar aðal vettvangur," segir Gunnar.
Nýverið hefur Vélsleðaþjónustan
tekið upp samstarf við nýtt fyrirtæki á
Egilsstöðum, Dis ehf., en það fyrirtæki
framleiðir sótthreinsibúnað. Segja má
að Ice-Clean kerfin sé nú að finna í
húsum hringinn í kringum landið og
starfsstöðvar fyrirtækisins eru bæði í
Kópavogi og á Akureyri. Sunnan heiða
fer smíðin fram en tveir starfsmenn
gera út frá Akureyri í uppsetningu úti í
fyrirtækjum.