Ægir - 01.01.1998, Qupperneq 43
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
aðar úr ryðfríum stálrörum og með
sléttu yfirborði sem óhreinindi tolla
illa á og auðvelt er að hreinsa.
Vélbúnaður
Aðalvél Ásdísar er frá Catepillar, gerð
3406, 6 strokka línu-byggð fjórgengis
vél með túrbínu og eftirkæli. Hún er
365 hestöfl (26 KW) við 1800 snún-
inga á mínútu, vatnskæld með sjókæli
utanborðs.
Skrúfubúnaður tengist aðalvél um
gír frá Twin Disc, gerð MG 514 með
niðurfærslunni 3,5:1. Skrúfan er föst, 5
blaða skrúfa frá Brunton's Propeller
með 990 mm skurði fyrir 340 hestöfl.
Þvermál skrúfunnar er 1060 mm og er
hún án hrings.
Framan á aðalvél er Thecnodrive
deiligír frá Ósey. Deiligírinn er með tvö
aflúttök fyrir vélknúnar vökvadælur.
Tvær hjálparvélasamstæður eru í
skipinu. Ein er ný, vatnskæld frá FG
Wilson og samanstendur af 43 KW
Perkins vél, gerð 1004,4G með Newage
Stamford rafala 46,7 KVA, gerð UCN
224B. Hin er gömul loftkæld ljósavél
frá Hatz, 13 KW.
Rafkerfi skipsins er 3 x 220V, 50 Hz.
Auk þess er skipið búið landtengingu
um spenni, sem er 32A, 3 x 220 V.
Samfösun véla er möguleg í skamman
tíma.
Gamla stýrið og stýrisvélin eru not-
uð áfram. Stýrisvélin er frá Cylinder
Service í Noregi og er hún vökvaknúin.
Kæliþjappa af gerðinni Gelp-
hametric (Prest Cold) með sambyggð-
um rafmótor ("semi-hermetisk"), sér
um kæliþörf lestar. Kælikerfinu er stýrt
með Pecomark rafeindastýringu.
Loftblásari fyrir vélarúm er frá Ny-
borg, tveggja hraða af gerðinni MPV
359 AIK sem afkastar 6000 m3/klst. við
2800 sn/mín og 0,85 KW. Hann er
einnig hægt að keyra á 1400 sn/mín.
Ferskvatnsþrýstikerfi er fyrir
Óskum útgerð og áhöfn til
hamingju með breytingarnar.
Þökkum samstarfið.
RAFBQÐI-GARÐABÆ EHF.
S: 565 8096
Skeiðarás 3-210 Garðabæ - Fax 565 8221
ÆGiffi 43