Ægir - 01.03.1998, Blaðsíða 32
Stikla hf. flytur inn
Guy Cotten sjóklæði
Stikla hf. - útgerðarvörnr hófuttt
síðastliðin áramót innflutning á
Gtty Cotten sjófatnaði setn hefur
verið að ryðja sér rútns á markaði í
nágrannalöndunum að undanfómu.
Liíther Guðmundsson, framkvœmda-
stjóri Stiklu, segirþennan fatnað
bjóða upp á margar nýjungar sem
sjómönnum þyki eftirsóknarverðar,
enda liafi sýnt sig að viðtökurnar
ltafa verið góðar það sem afer.
Þær nýjungar sem eru í þessari fata-
línu eru m.a. að buxur ná hátt upp
undir hendur og minni hætta er á að
flæði ofan í þær þegar unnið er í kör-
um eða mikilli bleytu. Buxur eru tvö-
faldar að framan og þrefaldar á álags-
Sjómaður ígalla frá Guy Cotten.
flötum, hægt er að fá ermastroff á
galla sem hentar t.d. loðnusjómönn-
um vel og þeim sem þurfa að vinna
mikið upp fyrir sig.
„Efnið í þessum fatnaði er líka mjög
þjált, jafnframt því að vera sterkt. Eitt
af þeim atriðum sem við prófuðum
áður en við tókum þennan fatnað í
sölu var að sjá hvernig hann færi í
miklu frosti og eftir að ég sá hvað
hann var þjáll þrátt fyrir kulda þá
ákvað ég að taka hann. Annað atriði
sem skiptir miklu er að fatnaðurinn
saggar ekki að innan og það skiptir
menn miklu máli sem þurfa að vinna
lengi í sjógöllum," segir Lúther.
Allt til handfæraveiða
RB-Krókar • Girni • Blýsökkur
Járnsökkur • Gúmmídemparar
Sigurnaglar • Nælur
Sjógallar • Hanskar • Samfestingar
Sjóstangir • Veiðihjól
Heildsala / Smásala
Veiðarfæri
Vatnagörðum 14
Sími 581 4229
Fax 581 2935
32 EGSR