Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1998, Side 39

Ægir - 01.03.1998, Side 39
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI vt H i o T | Haukur Hauksson vinnur við rœkjutrollið sem fara á um borð í Húsvíking ÞH. Kári Páll segist alltaf eiga efni á lag- er þannig að hægt sé t.d. að setja upp rækjutroll með mjög skömmum fyrir- vara. „Já, það skiptir oft máli að geta ver- ið fljótir að bregðast við og setja upp veiðarfæri ef eitthvað fer úrskeiðis hjá mönnum. Við höfum líka allt hér á staðnum, bæði hopparana, grandarana og annað sem til þarf," segir Kári Páll. Rækjuskilja Höfða fengið góðar viðtökur á markaðnum Netagerð Höfða hefur hannað og framleitt smárækjuskilju sem Kári Páll segir að hafi komið mjög vel út og fengið góðar viðtökur útgerðarmanna. „Þetta er skilja sem við þróuðum sjálfir í samstarfi við nokkra skipstjóra og auðvitað er þetta tæki enn í mótun og á eftir að þróast. Ég hef trú á að skiljur eigi eftir að skipa fastan sess í veiðarfærum í framtíðinni," segir Kári. Smárækjuskiljan var prófuð af Haf- rannsóknastofnun í fyrra og fékk strax samþykki hennar. Það segir Kári Páll vera góð meðmæli með skiljunni og ánægjulegt að fá þá staðfestingu að þróunin skili árangri. „En það má samt alltaf breyta og bæta," bætir hann við. Kári Páll Jónasson, netagerðarmeistari, við vinnu sína hjá Höfða, netagerð FH. ÍREVTÍNGURP Sléttbakur í nýjum lit Sléttbakur EA, frystitogari Utgerðarfélags Akureyringa hf., er nú kominn til veiða á ný eftir að skipt var um vélar á vinnsludekki skipsins. Sömuleiðis hefur togarinn nú fengið hið nýja útlit UA- skipanna, dökkbláa litinn, og á hlið Sléttbaks er nú vörumerki SH, Icelandic, málað stórum stöfum. Örn KE úr seinni breytingunum Nótaskipið Örn KE er komið til landsins eftir endurbætur sem kalla má hinar síðari en árið 1996 var skipið lengt. Að þessu sinni var sett nýtt þilfarshús á skipið, skipt um aðalvél og endurnýjuð tæki í brúnni. Breytingarnar sem nú voru gerðar kostuðu um 200 milljónir króna. Vetrarleiðangri Hafró 1998 lokið Vetrarleiðangri Hafrannsókna- stofnunar, þar sem gerðar voru hita og seltumælingar, er lokið. Leið- angurinn var óvenju erfiður sökum óveðurs og íss en helstu niðurstöður sýna gott ástand í sjónum við landið. Mikil áhrif selturíks hlýsjávar að sunnan samfara mildum vetri virðast hafa skipt sköpum í togstreitu hlý- og kaldsjávar á miðunum við landið, þrátt fyrir óvenju mikið vetrarríki eftir miðjan febrúarmánuð. ÆGm 39

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.