Ægir - 01.03.1998, Blaðsíða 30
- segir Páll Elfar Pálsson hjá Umbúðamiðstöðinni hf.
30 mm
Hinar nýju umbúðir sem Umbúðamiðstöðin lét hanna. Eins og sjá má prýðir mynd af
fökulsárlóni umbúðirnar og segir Páll að þcer hafi vakið mikla athygli og fengið lof bceði
kaupenda og framleiðenda.
Reykjavík og er þaðan stýrt allri vöru-
dreifingu til viðskiptavina hér á landi.
„Tækjaþróun í sjávarútvegi hefur
knúið menn til að þróa umbúðir enn
frekar og það hefur Umbúðamiðstöðin
gert allt frá því fyrirtækið var stofnað
árið 1964. Umbúðirnar eru þróaðar í
samstarfi við framleiðendur og um
leið er reynt eftir megni að koma með
hagkvæmari lausnir, samhliða nýjum
tækjabúnaði í vinnslunum," segir Páll.
Samræmdar umbúðir fyrir
íslenskan gæðafisk
Um langan tíma hefur hönnun á öskj-
um verið þannig að þar er komið fyrir
nauðsynlegustu upplýsingum um
innihald. Að sögn Páls tók Umbúða-
miðstöðin nýverið ákvörðun um að
hafa frumkvæði að því að hanna og
framleiða umbúðir sem væru staðlaðar
í útliti og smekklegar en með mun
meiri möguleikum fyrir framleiðendur
að koma upplýsingum um innihald á
framfæri við kaupandann.
„Með þessu getum við framleitt
mikið magn umbúða í einu á hag-
kvæman hátt og mætt þeim þörfum
framleiðenda að koma á framfæri á
sérstökum miðum með öskjunum
miklum upplýsingum um vöruna.
Þarna komumst við hjá því að sér-
prenta öskjur í litlu upplagi og ég get
ekki annað sagt en viðtökurnar við
þessum öskjum hafi verið góðar enda
getur hvaða framleiðandi sem er not-
að þessar öskjur því þær upplýsingar
sem hver og einn lætur prenta á mið-
T Tmbúðainiðstöðin líf. er stœrsti
framleiðandi á öskjum fyrir fisk-
vinnslu liér á landi og eru stóru sölu-
fyrirtœkin, Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna hf. og íslenskar sjávaraf-
urðir hf., stœrstu kaupendur á þeirri
framleiðslu innanlands. Páll Pálsson
hjá Umbúðamiðstöðinni hf. segir út-
flutning á öskjum frá fyrirtœkinu
hafa vaxið jaftit og þétt að undan-
fórnu, þattnig að sókn á tnarkaðnutn
sé jafnt innan sent utan lands. Páll
segir óumdeilt að ntiklar tœknibreyt-
ingar haft átt sér stað í fiskvinttsl-
unni hér á landi undanfarin ár og
enn eigi mikið eftir aðgerast íþá átt.
Umbúðir skipti ekki hvað síst máli í
þessari þróuii og þegar um er að rœða
fidlviimslii t neytendapakkningar
geti untbúðirnar sjálfar oft skilið á
tnilli þess að varan seljist eða ekki.
Umbúðamiðstöðin hefur nú yfir að
ráða 7000 fermetra vöruhóteli í
Páll Elfar Pálsson
Fylgjum tækninni eftir
með þróun umbúðanna