Ægir - 01.10.1998, Blaðsíða 16
S/f ipas,
i/iasin íða iðnaðiirinn
Hábergið á leið upp í dráttarbraut. Þetta er eitt stœrsta skip sem tekið liefur verið upp á
Neskaupstað en nú hefur Dráttarbrautar SVN hœtt rekstri upptökumannvirkja og snúast
meginverkefhi fyrirtœkisins nú um uppbyggingu mannvirkja fyrir Síldarvinnsluna hf.
menn til lengri eða skemmri tíma.
Þannig að til að leysa málin höfum
við alltaf þurft að fá vinnuhópa að,
bæði að sunnan og norðan."
Margir nemar í vélsmíði
Það hefur vakið nokkra athygli að
mikil ásókn er eftir að komast í nám í
vélsmíði á vélaverkstæði Síldarvinnsl-
unnar hf. Karl Jóhann Birgis-
son, rekstrarstjóri, segir að í
dag séu 11 námssamningar í
gildi, allir vegna nema í vél-
smíði. Þar af eru 5 vélskóla-
nemar á opnum samningi. Á
síðustu 12 árum hafa 28 verið
á námssamningi hjá fyrirtæk-
inu, flestir frá Neskaupstað og
víðar úr Austurlandsfjórðungi,
en einnig annars staðar af
landinu. Þrátt fyrir þessa út-
ungun hjá fyrirtækinu er
skortur á járniðnaðarmönnum.
Vélaþekking hefur týnst
- Hvað með tækjakost fyrirtækisins?
„Það má segja að hluti tækjakosts-
ins sé frekar gamall og úr sér genginn,
þ.e.a.s. eldri tækjabúnaðurinn," segir
Jón Valgeir. „Við fórum hins vegar út í
kaup á nýjum búnaði til að vinna úr
ryðfríu stáli sem gjörbreytti allri að-
stöðu. Þessi kaup voru náttúrlega fyrst
Verðum að vera stórhuga
og vonast til þess að skipasmíði
á íslandi eigi sér viðreisnar von.
og fremst gerð vegna smíða okkar á
fiskvinnslulínum. Tækin sem keypt
voru frá Tyrklandi hafa reynst mjög
vel og má segja að ástandið í dag sé
vel viðunandi. Áður máttum við leita
til Reyðarfjarðar ef við þurftum að
beygja eða klippa."
- Nú hættuð þið rekstri dráttar-
brautarinnar í sumar. Minnkar það
ekki atvinnuöryggið?
„Málið er að við höfðum einfald-
lega ekki mannskap til að sinna þess-
um þætti starfseminnar og því var
þessum hluta rekstrarins nánast sjálf-
hætt. Ef við hefðurn haldið þeim
rekstri áfram og hugsanlega stækkað
eða sett upp ný upptökutæki hefðum
við þurft að sjá starfsmannafjöldann
að minnsta kosti tvöfaldast til þess
eingöngu að geta sinnt þeim verkefn-
um sem til féllu hér innan fjalla-
hringsins. Þá á ég við öll skip Síldar-
vinnslunnar, en svo eru auðvitað fleiri
skip í fjórðungnum.
Það er hins vegar umhugsunarefni
að á þeim 15 árum sem ég hef verið
hér hefur þróunin orðið sú að í stað
þess að sinna almennu viðhaldi og
upptöku véla erum við í nýsmíði.
Þetta hefur að mínu mati leitt til þess
að vélaþekking hefur týnst, því öll sú
vinna fer nú fram annars staðar. Þetta
finnst mér miður en það má enginn
skilja orð mín svo að mér þyki eitt-
hvað athugavert við nýsmíðina. Ég
hefði bara viljað halda í báða þætt-
ina."
Glatast kunnáttan
að smíða skip?
-En á skipasmíði hér á landi
sér viðreisnar von?
„Já, verðum við ekki að vera
stórhuga. Ég held að þegar og
ef þjóðfélagsástandið þarna
austur frá lagast og menn þar
fara að fá mannsæmandi laun,
hætta þessi undirboð sem hafa
viðgengist. Þá förum við að
smíða skip á nýjan leik, en þá
verður aftur á móti spurning
hvort þekkingin verður ennþá til stað-
ar."
16 ÆG,IR