Ægir - 01.10.1998, Page 17
S/»' i/) (isin ída idn (i() uri n n
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Astandiö í skipaiðnaðinum hefur
verið nokkuð gott frá árinu 1995
en ntörg ár þar á undan voru slœni
og má tala um hrun ígreininni á
þeim tíma, skipasmíðafyrirtœkin
enduðu flest hver ýmist í nauða-
samningum eða gjaldþroti. Eftir
þessa miklu erfiðleika hafa skipaiðn-
aðarfyrirtœkin verið endurreist, nýir
eigendur liafa komið til skjalanna og
nýtt fjármagn verið lagt til. Efaftur
á móti er horft til líðandi stundar þá
verður að segjast að aðstœður hafa
verið og eru að breytast til hins verra.
Kostnaðarhœkkanir hafa verið ittikl-
ar íþjóðfélaginti og við getum ekki
svo auðveldlega velt þeim út í verð-
lagningu okkar vegna þess að sam-
keppnin við erlendar stöðvar er hörð.
Það er okkur þess vegna mikilsverðast
að almennt takist að koma böndum
áþensluna íefnahagslífinu,"segir
Ingi Björnsson, framkvœmdastjóri
Slippstöðvarinnar hf. á Akureyri.
Segja má að Slippstöðin sé einmitt
lýsandi dœmi um það sem Ingi
nefndi hér að frantan; rekstrarerfið-
leikar fyrirtœkisins voru tniklir um
tíma eit eftir uppstokkun og komu
ttýrra eigenda að fyrirtœkinu liafa
hjólin aftur farið að snúast betur.
Ingi segir að árin 1996 og 1997 hafi
verið sérstaklega hagstæð skipaiðnað-
inum. Vegna stöðugleika í efnahags-
umhverfinu á íslandi hafi kostnaðar-
hækkanir verið svipaðar og jafnvel
minni en í helstu samkeppnislöndum
og þar af leiðandi hafi skipasmíða-
stöðvarnar skapað sér sterkari stöðu
gagnvart erlendri samkeppni.
„Um leið og við fórum að sjá raun-
gengislækkun gagnvart helstu við-
skiptalöndum þá tókst að ná verkefn-
um til hérlendra stöðva sem ella hefðu
farið til útlanda. Iðnaðurinn í landinu
var allur mjög fljótur að taka við sér
og sýnir það að hér getur þrifist kraft-
mikill iðnaður ef almennt efnahagsá-
stand er hagstætt. Síðan má ekki
gleyma því að á þessu tímabili var út-
gerðin hér heima líka rekin með mun
Ingi Björnsson, framkvœmdastjóri Slippstöðvarinnar á
Akureyri, segir skipasmíðafyrirtœkin hafa styrkt stöðu
sína verulega á árunum 1995-1997 en nú sjáist
greinileg merki um erfiðari rekstrarskilyrði:
„Þenslan í þjóð-
félaginu veldur
iðnaðinum
erfiðleikum66
Ingi Björnsson, framkvœindastjóri Slipp-
stöðvarinnar hf.
betri afkomu en áður og það kom
greinilega fram hjá þjónustufyrirtækj-
um eins og okkur. Ég vil því segja að
það séu þessi þrjú atriði sem skýra gott
gengi í skipaiðnaðinum á síðustu
árum, þ.e. uppstokkun hjá skipaiðnað-
arfyrirtækjunum sjálfum, hagstætt
efnahagsumhverfi og betri afkoma út-
gerðarinnar," segir Ingi.
Launaskrið, aðrar kostnaðar-
hækkanir og háir vextir
Þensla í þjóðfélaginu getur haft já-
kvæð áhrif í sumum atvinnugreinum
en miður góð í öðrum. Skipasmíðaiðn-
aðurinn er dæmi um hið síðarnefnda
og þenslunni kennir Ingi um að rekst-
urinn er greinilega erfiðari á yfirstand-
andi ári en í fyrra.
„Þessi þensla sem er í þjóðfélaginu
orsakar mikið launaskrið og að við-
bættum öðrum kostnaðarhækkunum,
og háum vöxtum, þá er samkeppnis-
staða okkar gagnvart erlendum stöðv-
um mjög að versna. Þetta eru þau
hættumerki sem við stöndum frammi
fyrir þessa dagana og þau má greini-
lega sjá af nýlegri könnun Samtaka
iðnaðarins sem sýnir að tvær krónur
af hverjum þremur í hagnað í iðnfyrir-
tækjum á fyrra ári eru nú horfnar,"
segir Ingi og að hans mati koma áður-
nefndar kostnaðarhækkanir harðar við
iðnaðinn en t.d. sjávarútvegsfyrirtæk-
in vegna þess að þar á bæ hafi á sama
tíma orðið hækkanir á afurðaverði.
„Skipaiðnaðurinn er líka mjög við-
kvæmur vegna þess að okkar verkefni
eru afskaplega hreyfanleg, ef svo má
segja. Eigendur skipanna sigla þeim
ÆGilR 17