Ægir - 01.10.1998, Síða 18
vSki/Msin íða iðnaðun
„Að mínu mati þurfum við að sjá 5-6 góð ár til að byggja fyrirtœkið upp og komast á
lygnan sjó, þó svo að við séum með mun betur búið fyrirtœki í dag en var fyrir þremur
árwn," segir Ingi Björnsson.
þangað sem þeir fá lægstu verðin á
hverjum tíma og það er staðreynd sem
við verðum að horfast í augu við."
Þörfin fyrir endurnýjun
búnaðar var mikil
Síðustu ár hafa verið notuð hjá Slipp-
stöðinni hf. til endurnýjunar á ýms-
um búnaði sem orðinn var gamall en
ekki var tök á að endurnýja á meðan
reksturinn var hvað þyngstur. Þá
keypti Akureyrarbær flotkví sem sett
var niður við Slippstöðina árið 1995
og hún hefur aukið til muna mögu-
leikana til að taka upp stærri skip til
viðhalds og breikkað þjónustusvið fyr-
irtækisins.
Ingi segir engan vafa leika á að fyr-
irtækin í skipaiðnaðinum hafi styrkst
að undanförnu en hins vegar þurfi
mun fleiri hagstæð ár til að byggja fyr-
irtækin upp. Fyrr verði ekki hægt að
segja að þau hafi burði til að mæta
niðursveiflunum sem koma með
reglulegu millibili.
„Við höfum fjárfest fyrir um 60-100
milljónir króna á ári undanfarin þrjú
ár og það er ekki undarlegt í ljósi þess
að fyrirtækið hafði gengið í gegnum
10 ára erfiðleikatímabil þar sem vél-
um, tækjum og öðrum búnaði var ekki
haldið við sem skyldi. Að mínu mati
þurfum við 5-6 góð ár til að byggja
fyrirtækið upp og komast á lygnan sjó,
þó svo að við séum með mun betur
búið fyrirtæki í dag en var fyrir þrem-
ur árum," segir Ingi.
Möguleikar til nýsmíði
eru fyrir hendi
Þegar farið er yfir tölur um nýsmiði
báta og skipa hér á landi er sláandi
hversu lítið hefur verið um slíkt á allra
síðustu árum. Enda fer meðalaldur
flotans hækkandi og getur ekki talist
annað en áhyggjuefni fyrir fiskveiði-
þjóðina íslendinga.
Hjá Slippstöðinni hf. eru aðstæðar
til nýsmíði vissulega góðar en samt
sem áður hefur þar ekki verið lagður
kjöiur að nýju fiskiskipi í hartnær 10
ár. Þessa dagana er Slippstöðin að
bjóða útgerðarmönnum nýsmíði á 25-
30 tonna bátum og gerir Ingi sér vonir
um að af slíkri nýsmíði verði í vetur
og segir það raunar mjög mikilvægt
fyrir fyrirtækið, með tilliti til framþró-
unar og tækninýjunga. Á hinn bóginn
á Ingi ekki von á að í nánustu framtíð
verði smíðuð frá grunni stærri skip hjá
Slippstöðinni á borð við þau sem
smíðuð voru á síðustu 2-3 áratugum.
„Nei, ég á ekki von á því, einfald-
lega vegna þess að það er mun hag-
stæðara nú að kaupa skipsskrokka eða
skrokkhluta erlendis frá en ljúka síðan
smíðinni hér heima. Þannig smíða
t.d. Norðmenn flest sín fiskiskip í dag.
Að mínu mati eru umtalsverðir mögu-
leikir til nýsmíða í framtíðinni og bát-
amir sem við erum nú að bjóða eru
vonandi fyrsta skref okkar til frekar
nýsmíðaverkefna. Við vitum að endur-
nýjunarþörfin í bátaflotanum er mjög
mikil og sömuleiðis er þörf á smíði öfl-
ugra skipa fyrir nótaveiðiflotann. Von-
andi færumst við nær því að smíða
stærri skip en þá yrði ekki allt smíðað
hér heima heldur yrðu hönnun og frá-
18 ÆGJIR