Ægir - 01.10.1998, Blaðsíða 28
Saí
ipasniíöaiðiifiðurinn
hf. nýlokið við að setja niður nýtt
vinnslukerfi i ísfisktogarann Sturlaug
H. Böðvarsson frá Akranesi. Sömuleið-
is var sett niður vinnslukerfi í frysti-
togarann Sigurbjörgu ÓF fyrr á árinu.
„Fyrirsjáanlega þurfa margir að end-
urnýja búnað í ísfisktogurunum í nán-
ustu framtíð en það er spurning hvað
eigendur sjá sér hag í að gera. Þegar
við endurnýjuðum búnaðinn í Stur-
laugi H. Böðvarssyni var það unnið í
mjög góðu samstarfi við eiganda
skipsins, Harald Böðvarsson hf., en
slíkt samstarf getur einmitt leitt af sér
framþróun og orðið til góðs. HB sóttist
eftir betra hráefni fyrir sína vinnslu og
búnaðurinn sem við þróuðum og sett-
um niður hefur skilað þeim árangri
sem ætlast var til. Þetta er dæmi um
að það er framleiðslufyrirtæki á
vinnslubúnaði, líkt og við erum, alger-
lega ómetanlegt að hafa við hlið sér
metnaðarfullt fiskiðnaðarfyrirtæki í
þunga þátt í hötmun og ffamleiðslu á há-
tœknibúnaði fyrir fiskvinnslur, segir
Þorgeir Jósefsson.
fremstu röð, eins og Haraldur Böðvars-
son hf. er," segir Þorgeir.
Eftirsjá í hafrannsóknaskipinu
Flestir í skipaiðnaðinum virðast sam-
mála um að íslendingar geti seint
keppti við smíði á stærri skipsskrokk-
um - og eigi í raun ekki að stefna á
það. Öðru máli kunni að gegna um
minni bátana en mikilvægast af öllu
sé að hönnun skipa sé innlend, sem
og niðursetning á búnaði og frágang-
ur. Þorgeir er þessarar skoðunar þegar
rætt er um nýsmíði skipa í framtíðinni
og hann bendir á að í mörgum verk-
efnum geti íslensku stöðvarnar haft
með sér samstarf sem skili öllum ár-
angri.
„Ég viðurkenni að mér finnst eftir-
sjá í því að ekki hafi tekist að halda
smíði hafrannsóknarskips hér heima.
Þar er á ferðinni mjög eftirsóknarvert
verkefni og að mínu mati áhugaverð-
ara en smíði varðskips en það þýðir
auðvitað ekkert að gráta það sem orðið
er. Vonandi höldum við smíði varð-
skips hér heima og óskandi að við
fáum fleiri nýsmíðaverkefni á kom-
andi árum," segir Þorgeir Jósefsson.
□ Skipateikningar og hönnun breytinga og nýsmíða.
□ Útboðsgögn, verkiýsingar og kostnaðaráætlanir.
□ Eftirlit og umsjón með framkvæmdum.
□ Hallaprófun, gerð stöðugleikagagna, BT-mæling.
□ Almenn tæknfræðiráðgjöf á sviði skipa og véla.
i
s
SKIPA- OG VÉLATÆKNI
RÁÐGJÖF, HÖNNUN OG EFTIRLIT
Hafnargötu 60, Pósthólf 38, 230 Keflavík
Sími 421 5706, Fax 421 4708
28 AGIR