Ægir - 01.10.1998, Side 30
Qkipasmíðaiðnaðurinn
Hríseyjarferja byggð
á vetrarmánuðum
„Það má heita að slippurinn hafi verið
fullur hjá okkur undangengin tvö ár.
Því til viðbótar koma skip sem við ger-
um við hér við Ægisgarðinn, þar sem
við höfum aðstöðu, og auk þess höf-
um við útibú í Funahöfða hér í
Reykjavík þar sem við vinnum að við-
halds- og framleiðsluverkefnum m.a.
fyrir álverin," segir Ágúst.
Á dögunum var samið við
Stálsmiðjuna um smíði nýrrar
Hríseyjarferju og verður
skrokkur þess skips smíðaður í
Póllandi. Smíði ferjunnar var
boðin út og átti Stálsmiðjan
lægsta tilboðið. Ágúst segir að
nær öll nýsmíða- og viðhalds-
verkefni séu boðin út. Slagur-
inn í þessum iðnaði sé undan-
tekningalítið í krónum og
aurum. Góð þjónusta skiptir
auðvitað einnig miklu máli
og ræður oft úrslitum.
Nýju ferjuna mun Stálsmiðjan hf.
afhenda þann 15. júlí á næsta ári.
Skrokkur hennar kemur til landsins í
byrjun febrúar og þá hefst frágangs-
vinnan.
að síður verður þessi flokkur báta áfram
til í útgerðarmynstrinu okkar," segir
Ágúst og bendir á að margir góðir bátar
hafi verið úreltir síðustu ár á meðan
enn aðrir þarfnist endurnýjunar.
„Þar af leiðandi tel ég að þegar litið
er yfir sviðið þá sjáist víða merki um
að á komandi árum verði mikið um
endurnýjun á skipum. Það verða verk-
efni komandi ára, jafnframt hinu al-
menna viðhaldi. Þessa dagana finnum
við fyrir því að vel árar í greininni og
þá höfum við mikið að gera en á sama
hátt kemur strax fram hjá okkur ef
harðnar á dalnum í útgerð," segir
hann.
Útgerðarmenn finna hagkvæm-
ustu leiðina hverju sinni
- Ef horft er fram í tímann og reynt að
spá fyrir um framtíðarþróun í útgerð
þá spyrja margir sig þeirrar spurningar
hvort fiskiskipin eigi eftir að verða
færri og stærri. Telurðu að svo verði?
„Ég treysti mér ekki til að spá fyrir
um þetta. Við sjáum þó að niðursveifl-
an í þorskveiðunum hefur breytt út-
gerðarmynstrinu og þar með samsetn-
ingu fiskiskipaflotans. Sjálfsagt
munum við eiga mjög stóra
togara inn á milli en aðallega
snýst málið um að vera með
vel búin fiskiskip og hentug
fyrir verkefnin hverju sinni -
skip sem bæði búa vel að
áhöfnunum og gera aflameð-
ferðina fyrsta flokks. Best
treysti ég þó útgerðarmönnum
til að meta skynsamlegstu leið-
imar i þróuninni hverju sinni.
Mér sýnist að í gegnum árin
hafi þeim tekist vel að finna hag-
kvæmustu leiðina til útgerðar," svarar
Ágúst.
Tel að vertíðarútgerðin eigi eftir að
ganga í gegnum endurnýjun
lífdaga. Þessir bátar munu verða
áfram til í útgerðarmynstrinu.
Hóflega bjartsýnn á nýsmíða-
verkefni fyrir flotann
Ágúst segist hafa trú á að nýsmíða-
verkefnin muni verða all mörg fyrir
flotann á komandi árum Hann kveðst
vona að þau verkefni sigli ekki öll úr
landi, ef svo má segja.
„Önnur fyrirsjáanleg verkefni eru
fyrir nótaskipaflotann. Þar munu út-
gerðir horfa mjög til þess að stækka
vélar vegna kolmunnaveiðanna með
miklum tilkostnaði. Þess vegna tel ég
að margir velji þann kostinn að byggja
ný skip í stað þess að endurbyggja
gömul.
Síðan er það líka mitt mat að vertíð-
arútgerðin eigi eftir að ganga í gegn-
um endurnýjun lífdaga. Hún mun
kannski ekki verða með nákvæmlega
sama formi og við höfum séð en engu
Mikil endumýjun hefur átt sér stað á upptökumannvirkjum Stálsmiðjunnar hf. síðustu
ár og stand nú fyrir dyrum frekari framkvœmdir í þeim efhum. Ætlunin er m.a. að
endurnýja hliðarfœrslur.
30 Mm
jóhann Ólafur Halhlórsson