Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.1998, Side 37

Ægir - 01.10.1998, Side 37
S/i i[) (isni íð u i ðn a <) iiri/m SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Flotkví Vélsmiðju Orms og Víglundar fór illa þegar hún var dregin til landsins siðastliðinn vetur. Vegna þess að framtíðarstaður hennar við Hafnarfjarðarhöfn er ekki tilbúinn hefur viðgerð á kvínni beðið en vcentanlega verður luin tilbúin fýrir starfsemi á komandi J r-i— ZTý t~TT 1 1 ggh L f i vori ekki lokið fyrr en með vorinu og sömuleiðis er að hefjast vinna við lag- færingar á kvínni. Vélsmiðjan á aðra kví sem iyftir 2.750 tonnum og af stærðarmuninum má sjá hversu mikil bylting nýja kvíin verður. Vinnuaðstaðan góð Vélsmiðja Orms og Víglundar var stofnuð 1973 og var fyrstu árin aðal- lega í allra handa nýsmíði fyrir virkj- anir og þess háttar, smíðaði búnað og tæki og setti upp vélasamstæður. Fyrirtækið sérhæfði sig í smíði á raf- skautskötlum og segja bræðurnir að í raun hafi þeir verið með byltingar- kennda framleiðslu í höndum, tilbúna til útflutnings. Þrátt fyrir það ákváðu þeir að snúa sér að öðrum hlutum. Áríð 1993 dró verulega úr verkefn- um fyrir virkjanirnar og þá söðluðu þeir um og snéru sér að skipaþjónust- unni. Þeir keyptu Drafnarslippinn í Hafnarfirði en hann tekur allt upp í um 500 tonna báta, auk þess sem þar er hægt að hliðarfæra allt upp í 250 til 300 tonna skip. Þeir eru með litla bátabraut inni í húsi og ioks eldri kvína. Hana keyptu þeir 1995. „Þá höfðum við verið að leita að flotkví í ein tvö ár. Það kom aldrei til greina að settur yrði upp stór slippur í Hafnarfirði og flotkví var því eina lausnin ef gera átti við stór skip hér í bænum. Vinnuaðstaða í flotkvíum er mjög góð. Við höfum krana yfir okkur öllum stundum og slétt gólf gerir starfið miklu skemmtilegra og þægi- legra en í slippvinnunni," segir Guð- mundur. Skipin sífellt að stækka Eiríkur segir að næg verkefni hafi verið fyrir gömlu kvína. Þeir hafi strax feng- ið mjög góð viðbrögð frá útgerðinni hér heima og nú sé málum þannig háttað að nýtingin á henni sé nokkuð yfir 90 prósent á ári. Mjög mikið hafi verið um ýmis smærri verkefni og þeir hafi ekki treyst sér til þess að bæta við sig öllum stærri verkefnunum. Þeir hafi hreinlega ekki getað haldið kvínni upptekinni í langan tíma fyrir hvert verk. „Það breytist nú þegar við tökum þá stóru í gagnið. Við vonumst til þess að geta stækkað markaðinn í stað þess að fara í samkeppni við okkur sjálfa. Við stefnum að því að ná til þeirra sem hingað til hafa farið með skipin til útlanda. íslendingar eiga orðið töiuvert af mjög stórum skipum og þróunin og kröfurnar eru þannig að þau munu halda áfram að stækka," segir Eiríkur. Guðmundur bætir við að með tveimur upptökumannvirkjum horfi þeir fram á meira jafnvægi í rekstrinum. Nú geti þeir tekið að sér stærri verkefni sem taki lengri tíma og --------------------ÆGIR 37

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.