Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1998, Blaðsíða 59

Ægir - 01.10.1998, Blaðsíða 59
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Tilheyrandi línuveiðiútbúnaðinum, er Line Tec tölvustýribúnaður með skjá og stjórnborði frá Vaka hf. Line Tec búnaðurinn gerir skipstjóra kleift að stjórna dráttarkrafti og hraða línunnar í drætti miðað við aðstæður hverju sinni og koma þannig í veg fyrir að fiskur tapist í drætti eða að línan slitni vegna of mikils dráttarátaks. Vindubúnaður og losunarbúnaður Fremst á efraþilfari er akkerisvinda með tveimur útkúplanlegum vírtroml- um og tveimur koppum. Nýr þilfarskrani frá Palfinger kemur í stað löndunarbómu sem áður var. Kraninn hefur 2 tonna lyftigetu við 6 metra arm og er útbúinn með 2 tonna vírspili. Vélbúnaður Aðalvélin er ný frá Caterpillar af gerð- inni 3512B, 12 strokka V-byggð fjór- gengis vél með túrbínu og millikæli. Hún er 738kW (1003 hö) við 900 sn/mín. Vélin tengist nýjum niður- færslugír með innbyggðri kúplingu frá Reintjes af gerðinni LAF-742 með nið- urgíruninni 3,3:1. Eldri skrúfubúnaður frá Seffle af gerðinni HUB 53/3 sem fyrir var í skipinu er notaður áfram. Skrúfan er þriggja blaða, 2100 mm í þvermál og án hrings. Hjálparvélar Tvær hjálparvélar eru í skipinu, ein ný frá Caterpillar af gerðinni 3304 DIT, 4 strokka, 127 hö sem knýr 85 kW rafal frá sama framleiðanda, 220/380V AC. Eldri vélin var sett niður í skipið árið 1991. Hún er sömu gerðar og eins út- búin og nýja vélin. Rafkerfi skipsins er 3 x 220/380 V, 50 Hz. og í skipinu er 63A landtenging. Hægt er að keyra ljósavélar saman. Stýrisvélin er frá Tenfjord, gerð H- 330-130 ESG-415. Á Spáni var stýris- blaðinu breytt, stækkað fram um 20 cm og á það settur stýrisuggi. Eldsneytisolíuskilvinda er frá West- Núpur smíðaður í upphafi fyrir færeyskan útgerðarmann Skipið var smíðað hjá skipasmíðastöðinni Szczecinska Stocznic Remontowa í Póllandi árið 1976 fyrir Færeyinginn J.F. Kjplbro. Skipið er nr. OR30/6, smíðað samkvæmt kröfum og undir eftirliti Det Norske Veritas í flokki ( 1A, Deep Sea Fishing, Ice C, MV). Núpur BA er eitt af níu línu- veiðiskipum sem Færeyingar létu smíða fyrir sig á árunum 1976 til 1978 í Pól- landi. Skipið sem alla tíð hefur borið sama nafn var flutt inn í júní árið 1981 frá Færeyjum af Skyldi hf. á Paterksfirði. Þórsberg hf. á Tálknafirði eignaðist Núp í júlí 1982 og Kaldbakur hf. í Grenivík í nóvember 1983 og gerði það út til janúar 1990. í febrúar 1990 var Núpur í eigu Þórs hf. á Eskifirði, en núver- andi eigandi, Oddi hf., eignaðist skipið í ágúst 1990. Skipið hefur að rnestu verið óbreytt þar til nú. Ný ljósavél var sett í skipið árið 1991 og andvelti- geymir 1993. Helstu breytingar nú Skipið var lengt um 6 metra fyrir framan band nr. 27, alls 12 bönd. Að- staða fyrir áhöfn var endurnýjuð, allir klefar endurnýjaðir og nýrri setustofu og saunabaði var komið fyrir. Skipt var um aðalvél og ljósavél, og nýjum þil- farskrana komið fyrir á efraþilfari. Röralagnir og sjódælur voru endurnýjað- ar og rafkatli komið fyrir í stað olíumiðstöðvar sem var fjarlægð. MÆ. 59 Guðbergur Rúnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.