Ægir - 01.05.1999, Page 13
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Kynsamlegum ákvörðunum í
Horfiö frá ríkisafskiptunum
Sjávarútvegsráðherrann fyrrverandi
metur stöðu sjávarútvegsins til áfram-
haldandi uppbyggingar góða.
„Sjávarútvegurinn hefur núna skil-
yrði til að takast á við eigin rekstur. í
gamla kerfinu var allt miðstýrt, veiði-
heimildir fastar og öll þróun var háð
opinberum ákvörðunum. Verðmynd-
un var í höndum ríkisins og þar með
varð ríkisvaldið að tryggja rekstrar-
grundvöllinn. Enginn agi var gagnvart
stjórnendum fyrirtækjanna til að ná
árangri í rekstri. Þetta allt leiddi til
stöðugra gengisbreytinga og kom í veg
fyrir að við næðum öðrum þjóðum í
lífskjörum. Þjóðin hefur að mínu mati
ekki í annan tíma notið beint og jafn
ríkulega ávaxtanna af viðgangi sjávar-
útvegsins og nú. Um þetta atriði er
deilt í þjóðmálaumræðunni en ég full-
yrði að það er sjávarútveginum helst
að þakka að fólk er að upplifa aukinn
kaupmátt og stöðugleika í þjóðfélag-
inu, sem svo lengi hefur verið beðið
eftir."
Tvöföldun þorskstofnsins
í tíð Þorsteins Pálssonar í sjávarútvegs-
ráðuneytinu þurfti að takmarka veru-
lega sókn í þorskstofninn og segir
hann mjög gleðilegt að stofninn sé
mun sterkari í dag en var fyrir 8 árum.
„Þorskstofninn er núna orðinn tvö-
falt stærri en hann var fyrir átta árum
og kominn yfir eina milljón lesta.
Þetta eru mjög gleðileg umskipti í ljósi
þess að þorskurinn vegur þyngst í út-
flutningsverðmætum þjóðarinnar."
Ef litið er yfir lengra tímabil sést að
úthlutun aflaheimilda hefur með ár-
unum færst nær ráðgjöf Hafrannsókn-
arstofnunar og Þorsteinn er ekki í vafa
um að meira samræmi verði í framtíð-
inni í ráðgjöf og úthlutun en var fyrr á
árum.
„Já, ég held að reynslan hafi kennt
að skynsamlegt er að fara eftir ráðgjöf
fiskifræðinga. Okkur tókst að tvöfalda
þorskstofninn á skömmum tíma
vegna þess að við fórum að ráðum vís-
indamanna. Það var e’rfið pólitísk
ákvörðun á sínum tíma að úthluta
veiðiheimildum í samræmi við vís-
indalega ráðgjöf en sú ákvörðun hefur
skilað sér margfaldlega og ég held að
enginn vilji snúa til baka í þessum
efnum."
Eigið fé í sjávarútvegi
í fyrsta sinn
Eitt af þeim atriðum sem bent er á
þegar einstakir þættir sjávarútvegs
sæta gagnrýni er að skuldir hafi aukist
í greininni. Þorsteinn segir að líta
verði til þess að eigið fé greinarinnar
--------------------ÆGIR 13