Ægir - 01.05.1999, Qupperneq 38
Guðbergur
Rúnarsson
verkfrceðmgur
hjá Fiskifélagi íslands
skrifar
Fiskifélag íslands
Aukínn togkraftur
íslenskra togskípa
/þessari grein verður fjallað um breytingar á framdrifskerfum þilfarsskipa,
sérstaklega togskipa, eftir að kvótakerfið var sett á árið 1984. Með tilkomu
kvótakerfisins breyttist rekstrarumliverfi sjávarútvegs mikið. Sókn í helstu
fiskitegundir sem veiðast við ísland var takmörkuð við aflamark og útgerðar-
menn vissu livað var til skiptanna, eða hvað skipin máttu veiða á fiskveiðiár-
inu.
Töluverðar deilur hafa verið um
þetta kerfi allar götur síðan og sýnist
sitt hverjum. Útgerðarmenn voru í
þeirri stöðu að aflinn var takmarkaður
á veiðislóðum við ísland. Nokkrar teg-
undir voru þó undanskildar kvóta og
sókn í þessa stofna jókst verulega.
Samhliða aukinni sókn í vannýtta
stofna varð ásókn í kvóta útgerða sem
af einhverjum ástæðum þurftu að
selja. Þegar þetta svigrúm minnkaði,
reyndu menn fyrir sér á nýjum veiði-
svæðum, fjarlægum slóðum og er
helst að nefna Reykjaneshrygg og
Barentshaf með tilheyrandi deilum
38 AGiIR ----------------------
við Norðmenn og Rússa, við Nýfunda-
land og í Síldarsmugunni. Síðast en
ekki síst hófst útrás íslenskra útgerða
til annarra landa til að nýta kvóta og
veiðileyfi þessara landa. Umtalsverðar
breytingar urðu jafnframt á togaraflot-
anum, sem er nú að meðaltali rúmlega
22 ára. Sumum skipunum var breytt í
vinnsluskip, önnur lengd og búin
perustefni. Mörg skip hafa fengið
nýjar vélar og nokkrar endurbætur á
skrúfubúnaði. Þrátt fyrir allar endur-
bætur er togkraftur margra togara í
minna lagi, sérstaklega fyrir veiðar á
djúpslóð með nýjum og stærri veiðar-
færum og hefur þörfin fyrir aukin tog-
kraft aukist. Til að auka togkraft skipa
skiptir þvermál skrúfu, snúningshraði
hennar og vélarafl út á skrúfuás höf-
uðmáli. Skrúfubreytingar eru að öllu
jöfnu nokkuð dýrar, því auk þess að
skipta um skrúfu, gír og vél þarf oftast
að smíða nýtt afturskip.
Eitt fyrirtæki hérlendis hefur haslað
sér völl hér heima og erlendis fyrir
aflaukandi aðgerðir fyrir togskip. Það
er fyrirtækið Naust Marine hf. sem
hefur sett upp búnað sem kallað er
Auto-Gen í togskip. Að sögn forráða-
manna fyrirtækisins eykur búnaður-
inn togkraft skipanna um allt að 25%,
sem er áhugaverður kostur fyrir skip
með takmarkað vélarafl. Hugmyndin
er sáraeinföld og byggir á því að hægt
sé að nota búnaðinn sem fyrir er, þ.e.
gír, vél og skrúfubúnað. Skuttogararnir
eru flestir búnir ásraföium og sumir