Ægir - 01.05.1999, Side 47
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
öðrum sem löndunarkrana framskips
en hinn er aftast á skipinu.
Skipið var sandblásið og málað með
Hempels málningu frá Slippfélaginu
málningarverksmiðju.
Mikill munur á móttökuaðstöðu
og millidekki
Guðmundur Jónsson, skipstjóri, segir
að Sigurfari sé allt annað skip að
afloknum breytingunum.
„Jafnframt því að lengja skipið voru
settir veltitankar um borð og ýmislegt
annað gerir skipið skemmtilegra í sjó,"
segir Guðmundur og aðspurður segir
hann að verkið hafi verið unnið á
mjög ásættanlegum tíma.
„Verkið tók í heild um þrjá mánuði.
Það var byrjað að breyta þann 12.
janúar og við vorum komnir á sjó
aftur um 20. apríl. Miðað við það sem
gert var þá er ég mjög sáttur við
þennan verktíma."
Sjóhæfnin jókst
Sjóhæfnin á skipinu er orðin mun
meiri en var áður, bæði vegna
lengingarinnar og veltitankanna.
Mesta breytingin er vinnuaðstaðan í
aðgerðinni á millidekkinu. „Hún er
orðin allt önnur en var áður," segir
Guðmundur.
Millidekksbúnaður
smíðaður af útgerðinni
Verkið kostaði um 30 milljónir króna,
þ.e. sá hluti sem framkvæmdur var í
Póliandi. Aðgerðaaðstaðan var smíðuð
hér heima, sem og færibönd á
millidekkinu og í lestinni. Allur sá
búnaður var smíðaður af
útgerðarfyrirækinu sjálfu, þ.e. Njáli hf.
í Garði.
„Þegar við komum með skipið heim
þá voru færiböndin og búnaðurinn
Við óskum útgerð og áhöfn til hamingju
með breytingarnar. Skipið er allt málað
með HEMPELS skipamálningu frá
Slippfélaginu Máiningarverksmiðju.
------------Slippfélagiö
Málningarverksmiöja
Dugguvogi 4 ■ 104 Reykjavík • Sími: 588 8000 • Fax: 568 9255
Sigurfari GK 138
ÆGIR 47