Ægir - 01.12.2000, Page 9
FRÉTTIR
Aðalsteinn Jónsson,
forstjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar:
Hættir eftir 50 ár
í forstjórastól
- Elfar Aðalsteinsson tekur við
Þau tímamót verða nú um áramótin að
Aðalsteinn Jónsson, forstjóri Hraðfrysti-
húss Eskifjarðar, lætur af störfum hjá fyr-
irtækinu. Aðalsteinn er óumdeilanlega
einn reynslumesti stjórnandi í sjávarút-
vegi á Islandi og einn af þeim sem hefur
haft mikil áhrif á þróun greinarinnar.
Aðalsteinn hóf störf sem forstjóri hjá
Hraðfrystihúsi Eskifjarðar árið 1950 og
hefur gegnt starfinu samfellt síðan. Síð-
ustu árin hefur hann dregið sig í hlé í
stjórnunarstörfum en jafnan fylgst vel
með daglegum rekstri, enda stór hluthafi
í fyrirtækinu. Forstjórastóllinn fer þó
ekki langt út fyrir fjölskylduna því við
starfinu tekur Elfar Aðalsteinsson, dótt-
ursonur Aðalsteins sem alinn er upp hjá
ömmu sinni og afa. Elfar er núverandi
framkvæmdastjóri Fiskimiða ehf. og á
sæti í stjórn Hraðfrystihúss Eskifjarðar.
Arsvelta Hraðfrystihúss Eskifjarðar
nemur þremur milljörðum og hjá fyrir-
tækinu starfa um 250 manns.
Hampiðjan
i landvinningum
í Danmörku
Hampiðjan hefur keypt 60% hlutafjár í
Cosmos Trawl í Danmörku. fyrirtækið er
staðsett í Hirtshals og hefur að aðal
verkefnum uppsetningu og vióhald
botntrolla og nóta.
TengsL féLaganna tveggja eru ekki
nýtiLkomin því um Langt skeió hefur
Cosmos TrawL notað ýmsar vörur frá
Hampiðjunni í sína uppsetningu á veið-
arfærum. Danska fyrirtækið er sterkt á
sviói troLLuppsetninga og verða fyrir-
tækin tvö með sterka stöóu gagnvart
innkaupum á sLíkum vörum.
Auk verksmióju i HirtshaLs rekur
Cosmos Trawl starfsemi í Skagen á Jót-
Landi og þar er sérhæfing í uppsetningu
fLottrolLa. Hjá fyrirtækinu í heild starfa
um 55 manns og veLtir það um 550
milLjónum danskra króna.
r C A R
V ^
Á
R E V N ' ^
TRYGGINGA-
MIÐSTÖÐIN HF.
AÐALSTRÆTI 6-8 • 101 REYKjAVÍK
SÍMI 51 5 2000 • www.tmhf.is