Ægir - 01.12.2000, Síða 17
ERLENT
Framleiðsla fiskimáltíða
og lýsis í Danmörku
í Danmörku eru einungis þrír aðilar sem
framleiða lýsi og tilbúnar fiskmáltíðir. I
fljótu bragði virðist sem þeir myndu
standa betur að vígi með því að samein-
ast, en þess í stað vinna þeir saman að
markaðsmálum og vöruþróun. Með sam-
vinnu og því að hver einstakur sérhæfi sig
í framleiðslunni telja þeir að fyrirtækin
nái sterkari stöðu á heimsmarkaði heldur
en raunin yrði með sameiningu.
Engin áform eru uppi um að koma á fót
framleiðslu utan Danmerkur. Það var
reynt í Mið-Austurlöndum fyrir þremur
árum en gaf ekki góða raun, að hluta til
vegna takmarkaðs veiðikvóta og þar af
leiðandi of lítils hráefnis. Höfuðáhersla
verður því lögð á framleiðslu- og gæða-
þróun, sem vænlegast er að vinna að í
Danmörku.
Sömuleiðis ná Danirnir forskoti á keppi-
nauta sxna, einkum í Suður-Ameríku.
Orsök þess að þörf er að sérhæfa fram-
leiðsluna má að hluta til rekja til póli-
tískra ákvarðana um veiðikvóta en einnig
til „lífrænu bylgjunnar" og umhverfis-
sjónarmiða. Nærtækt dæmi er minnkun
á leyfðu magni af díoxíni í lýsi og fiski-
mjöli.
Rannsóknir og samstarf við sjávarlíf-
fræðinga hafa h'ka mikla þýðingu fyrir
framtíð þessarar iðngreinar og markaðs-
setningu framleiðslunnar. Danmörk flyt-
ur 75-80% af þessari vöru til landa um
víða veröld nema Bandaríkjanna, sem
flytja inn frá Suður-Ameríku.
Stefnt er að aukinni sérframleiðslu,
betri nýtingu hráefnis, auknu næringar-
gildi og meiri hagnaði. Dæmi um sér-
framleiðslu er lýsi
með sérstökum ii
sem náð er án þes
að nota gervilitar-
efni. Esbjerg
Fiskindurstri fran
leiðir lýsið sem se
er til Japans þar
sem það er notað
við framleiðslu
matvæla úr tún-
fiski.
Þessi mikla
sérhæfing er góður undirbúningur fyrir
framtíðina því sýnt er að kröfur til fæðu-
efna munu aukast frá því sem nú er.