Ægir

Volume

Ægir - 01.12.2000, Page 29

Ægir - 01.12.2000, Page 29
ÆGISVIÐTALIÐ í þessi þrettán ár get ég sagt meó góðri samvisku að ég hef aldrei efast um að við værum á réttri leið. ur okkur tekist þetta. Auðvitað getum við íslending- ar sagt sem svo að réttast væri að láta Norðmenn brjóta ísinn í þorskeldi og við myndum síðan meta stöðu okkar í framhaldi af því. En það tel ég ranga stefnu því ég er hreint ekkert viss um að við stökkv- um inn á síðari stigum og framleiðum eldisþorsk með sama framleiðslukostnaði og Norðmenn verða þá komnir í. Þorskeldi hér á landi verður ekki byggt upp nema með nákvæmu og ítarlegu rannsókna- og þróunarstarfi og ég tel mikilvægt að marka stefnu þar að lútandi. Stjórnvöld þurfa koma að þessu verkefni og þar myndi Hafrannsóknastofnun gegna lykilhlut- verki. Ég get því vel séð fyrir mér stofnun fyrirtækis um þorskeldi hér á landi, rétt eins og stofnað var til Fiskeldis Eyjafjarðar fyrir þrettán árum um lúðueldi." Ekki andstæður Við Islendingar erum áhlaupsmenn á flestum svið- um. Einu sinni gekk loðdýraævintýri eins og hvítur stormsveipur yfir landið, næst var það fiskeldisævin- týrið. Að mörgu leyti sigldu bæði þessi ævintýri í strand á sínum tíma, en nú er svo komið að menn eru aftur farnir að veðja á laxeldi og stór sjávarútvegsfyr- irtæki hafa þegar lagt verulega fjármuni til þess. Framkvæmdastjóri Fiskeldis Eyjafjarðar segist alls ekki líta svo á að menn verði að velja á milli mikillar uppbyggingar í þorskeldi eða laxeldi. „Ég vil í sjálfu sér ekki bera þorskeldi og laxeldi saman. Ef menn geta alið lax við Island á samkeppnishæfu verði, þá er það miklu meira en sjálfsagt. Þetta er ekki annað- hvort eða. Þótt menn fari af krafti í laxeldi, þá á þorskeldi og rannsóknir því tengdar alveg hiklaust sama rétt á sér eftir sem áður.“ Laxeldisstóriðja í Eyjafjörð? Nýverið var haldin ráðstefna á Akureyri um fiskeldi og þar var framkvæmdastjóri Fiskeldis Eyjafjarðar einn frummælenda. Athygli vakti hversu ákveðið Ólafur varaði við hugmyndum um uppbyggingu iax- eldis í stórum stíl í Eyjafirði. „Mín afstaða til þessa máls mótast eingöngu af óttanum við sjúkdóma. Eins og ég hef sagt höfum við verið að byggja Fiskeldi Eyjafjarðar upp og á borðinu eru hugmyndir um þró- un þess og eflingu til framtíðar, bæði hér heima og utan landssteinanna. Uppbygging okkar erlendis byggir á því að við höfúm leyfi til þess að flytja út seiði. Við höfúm innflutningsleyfi til Noregs og Kanada og fáum væntanlega leyfi til þess að flytja seiði til Bretlands. Þessi leyfi höfum við fengið vegna þess einfaldlega að heilbrigðisástand í fiskeldi hér á Island er miklu betra en í nágrannalöndunum. Ef við fáum mörg þúsund tonna laxeldisstöð í Eyjafjörð, þá aukast mjög líkur á sjúkdómum sem eru vel þekktir í löndunum hér í kringum okkur. Ef það gerðist, þá yrði ekkert spurt af því hvort slík stöð væri í tveggja Saga Fiskeldis Eyjafjarðar hf. hófst á Hjalteyri fyrir þrettán árum. Starfsmönnum fyrirtækisins hefur tekist aó ná góöum tökum á framleiðslu lúðuseiða og á Hjalteyri eru nú framleidd um fjögur hundruð þúsund seiði á ári. eða tólf kílómetra fjarlægð frá stöð Fiskeldis Eyja- fjarðar. Þá yrði útflutningur á lúðuseiðum úr Eyja- firði líklega stöðvaður og þar með yrðu okkar áætlan- ir í uppnámi. Sjúkdómar gætu líka borist í klakfisk- inn og það væri grafalvarlegt mál því það tekur mörg ár að byggja upp nýjan klakfiskstofn. Ég sagði því einfaldlega á þessari fiskeldisráðstefnu á Akureyri að ég hefði ekkert á móti laxeldi við Island, en ég óskaði jafnframt eftir því að tillit yrði tekið til þess að við höfum í þrettán ár verið að byggja upp okkar fyrir- tæki í Eyjafirði. Og nú þegar við höfum náð góðum árangri, þá get ég ekki samþykkt það fyrir hönd eig- enda Fiskeldis Eyjafjarðar að hér verði heimilað ann- að fiskeldi sem geti haft verulega neikvæð áhrif á okkar framtfðarplön." Hér eru tveir af starfsmönnum Fiskeldis Eyjafjarðar hf., Óli Þór Jóhannsson og Birgir Kristinsson, við túðu- kreistingar í klakfiska- stöð fyrirtækisins á Dalvík. 29

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.