Ægir - 01.12.2000, Síða 39
FRÉTTIR
Varðskipið Þór varð að risavöxnu veitingahúsi í Hafnarfjarðarhöfn:
Erlendir gestir forvitnir um hlut-
verk skipsins í þorskastríðunum
Þeir sem leið eiga um Hafnarfjarðarhöfn komast ekki
hjá því að berja augum hið glæsilega veitingaskip, Thor,
sem þar liggur við Norðurgarðinn. Byggður hefur verið
stór veitingasalur yfir dekk skipsins og í heild rúmast
yfir 200 manns í sölum skipsins, auk þess sem í skipinu
er fullbúið eldhús, kælar, birgðageymslur og annað sem
þarf til veitingahúsareksturs. Samt sem áður er það
mögnuð saga skipsins sem veitingareksturinn byggir til-
veru sína á og um borð eru gestir uppfræddir um hlut-
verk skipsins í öllum þorskastríðum íslendinga.
„Við markaðssetjum skipið út á söguna
og fáum til okkar gesti sem koma gagn-
gert til að kynnast innviðum hin fræga
varðskips, Þórs,“ segir Maríus Helgason,
veitingamaður, sem rekur hlutafélagið
Thor veitingaskip ehf. Skipið þjónaði á
sínum tíma Landhelgisgæslunni og bar
þá nafnið Þór en eftir að það komst í
einkaeigu var nafni þess breytt í Thor.
Það skiptir ekki síst máli fyrir erlenda
ferðamenn, sem eru mjög áhugasamir um
sögu skipsins.
Bretar forvitnir um
ógnvaldinn Þór
„Við fórum í byggingu á stórum veit-
ingasal á dekki skipsins í janúar síðast-
liðnum og lukum því verki á mettíma.
Síðan hefur verið stöðugur straumur
gesta og ánægjulegt að margir erlendir
gestir koma til okkar. Undantekninga-
laust er fólk komið til að kynna sér þátt
skipsins í þorskastríðunum og til að svala
þeirri forvitni höfum við upplýsingar hér
um borð á íslensku og erlendum tungu-
málum. Sérstaklega eru Bretar áhuga-
samir um skipið og hingað komu t.d.
menn frá tímariti í Bretlandi og hafði
annar verið ljósmyndari um borð í breskri
freygátu á þorskastríðsárunum. Það hefur
því verið töluvert fjallað um skipið er-
lendis. Danir eru líka mjög áhugasamir
og það gerir ekki hvað síst uppruni skips-
ins en það er smíðað í Danmörku á sínum
tíma“ segir Maríus og segir þessa mánuð-
ina unnið að víðtækri kynningu erlendis
á veitingaskipinu og sögu þess.
Þyrluskýlið varð að fatahengi!
Sannarlega hefur gamli Þór fengið
skemmtilegt yfirbragð í höndum Maríus-
ar og samstarfsfólks hans. Brú skipsins er
sem mest upprunaleg og þangað geta
gestir lagt leið sína og sömuleiðis má t.d.
fara í vélstjóraherbergið og setjast þar
niður við sjónvarp. Þyrluskýli skipsins
hefur líka fengið nýtt hlutverk og er nú
fatahengi þannig að ýmislegt er með öðr-
um hætti í þessu fljótandi veitingaskipi
sem væntanlega siglir ekki í bráð - eða
hvað?
„Nei, skipið fer ekkert á næstunni. Eg
er að minnsta kosti ekki með skipstjóra-
húfuna uppi við,“ segir Maríus hlæjandi.
Smíðað í Danmörku
Skipið var smíðað í Danmörku fyrir rík-
issjóð árið 1951 og var því gefið nafnið
Þór. Var skipið notað sem varðskip allt til
ársins 1984 er því var lagt eftir að komið
hafði upp alvarleg vélarbilun í annarri
tveggja aðalvéla þess. Þvf næst varð það
Gamli góði þyrlupallurinn er orðinn að fatahengi.
Myndir: Sverri Jónsson
skólaskip og fékk nafnið Sæbjörg en kip-
ið hýsti starfsemi Slysavarnaskóla sjó-
manna næstu 13 árin. Fór skipið á 38
hafnir umhverfis landið þar sem haldin
voru námskeið fyrir sjómenn en síðasta
sigling þess til námskeiðahalds var farin
árið 1997. Eftir að hlutverki þess lauk
sem skólaskips var það selt Sjóferðum
Arnars á Húsavík. Fékk skipið þá nafnið
Thor og var því breytt í veitingaskip.
Liggur það nú í Hafnarfjarðarhöfn en
umfangsmiklar breytingar hafa verið
gerðar á skipinu að undanförnu, eins og
áður segir