Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1912, Side 13

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1912, Side 13
13 og er þess þó ógelið, að háskólinn á enn ekkert hiis fyrir sig og eigur varla svo teljandi sje. Til er að vísu Háskólasjóður frá garaalli tíð, enn hann mun ekki nema miklu. Auk þess hefur einn veglyndur borgari þessa bæjar, kaupm. Bened. I'ór- arinsson, gefið háskólanum stóra og höfðinglega gjöf, að upp- hæð 2000 kr., á stofnunardegi hans. Gjafabrjeíið hljóðar svo: »Til háskólaráðsins. í minningu þess, að Háskóli íslands er settur í dag, gef jeg lionum 2000 — tvö þúsund — krónur, sem verði sjóður hans til þess að vcrðlauna íslensk rit vísindalegs efnis. Peningarnir fylgja með brjefi þessu, enn skipulagsskrá mun jeg senda innan skamms. Virðingarfylst R en. S. Þórarinsson«. Ef m.argir fara að dæmi þessa heiðursmanns, er von um, að Háskólanum safnist fje með tímanum. Jeg kann honum alúðarfylstu þakkir í nafni stofnunarinnar. »011 frumsmíð slendur til bóta«. Háskóli vor á að stefna að því að laga smátt og smátt það sem áfátt er, svo að hann fullnægi kröfum tímans. Margir liáskólar hafa byrjað í smá- um stil, og síðan vaxið smátt og smátt. »Mjór getur verið mikils vísir«. Og þó að háskólinn fyrst í stað fullnægi ekki öllum kröfum nútímans, þá verður þó varla annað sagl, enn að hann bæli úr hinum bráðustu þörfum hinnar íslensku þjóð- ar. Þó að háskólinn sje ekki sem fullkomnastur, þá er hann þó sniðínn eftir þörfum vorum, og »hollt er heima hvað«. T. d. munu allir játa, að kenslustólarnir í íslenskum fræðum bæta úr brýnni þörf, ef kennararnir duga. Vjer höfum ástæðu til að vona, að liáskólinn verði með tímanum gróðrarstöð nýs mentalífs hjá þjóð vorri, og sjá allir hve ómetanlegt gagn það getur orðið fyrir menning vora og þjóðerni að liafa slíka stofn- un hjer innanlands. Meira að segja viljum vjer vona, að há- skólinn geti, þegar stundir líða, lagt sinn litla skerf til heims- menningarinnar, numið njr lönd í ríki visindanna, í samvinnu við aðra háskóla. Háskóli vor verður að nota sjer það sam- band, sem er á milli allra háskóla heimsins, einkum með því að styrkja unga efnilega námsmenn til að fara til annara liá- skóla að aíloknu námi lijer. Annars er hætt við, að sjóndeild- arhringur þeirra verði þröngur og að liáskóli vor, einkum með- an hann er ófullkominn, verði að nokkurs konar kínverskum inúr, sem byrgi fyrir útsýnina lil allieimsmenningarinnar.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.