Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1912, Side 18
18
og vóru þeir, eins og fyr var getið, kosnir á deildarfundum
10. júní 1911.
Þessir menn allir, rektor og deildarforsetar, átlu sæti i
háskólaráðinu.
Af störfum háskólaráðsins, áður enn kensluárið byrjaði,
er sagt nokkuð lijer að framan, þar sem getið er um ráð-
stafanir til bráðabirgða, er háskólaráðið vann að (sjá 17. bls.).
Á kensluárinu samdi það frumvarp til Reglugjörðar fyrir
Háskóla íslands, sem væntanlega innan skamms mun ná
staðfestingu konungs.
Erindisbrjef setti háskólaráðið starfsmönnum háskólans,
ritara og dyraverði, 6. sept. 1912 (sjá fylgiskjal VII og VIII).
Rektor háskólans til næsta háskólaárs (1912—1913) var
kosinn á almennum kennarafundi 14. júní 1912 og hlaut
kosningu prófessor Guðmundur Magnússon.
Um sama leyti eða litlu síðar vóru kosnir deildarforselar
á deildarfundum, og hlutu þessir kosningu:
í guðfræðisdeild: prófessor Haraldur Níelsson,
- lagadeild: prófessor Jón Kristjánsson,
- læknadeild: prófessor Guðmundur Hannesson,
- heimspekisdeild: prófessor Ágúst H. Bjarnason.
III. Kennarar háskólans og
starfsmenn.
Þess er áður getið, hverjir settir vóru til bráðabirgða af ráð-
herra tii að gegna kennaraembættum háskólans til 30. sept. 1911.
22. september 1911 vóru þessir menn skipaðir af konungi
prófessorar við háskólann:
í guðfræðisdeild: sjera Jón Helgason, r. af dbr., áður
forstöðumaður prestaskólans, og sjera Haraldur Níelsson, áður
dócent við prestaskólann.