Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1912, Blaðsíða 25
25
Munch-Petersen, Arrest og Forbud og Den danske Skifle-
ret eftir fyrv. próf. J. H. Deuntzer, Dómstólar og rjettar-
far á íslandi eflir próf. Einar Arnórsson og skrifaðir
fyrirlestrar.
Kenslan fór aðallega fram með yfirheyi'slum. Auk
þess skiftust kennararnir á að hafa skriflegar æfingar með
elstu og næstelslu stúdentunum.
Læknadeildin.
Prófessor Giiðmundur Magmisson:
1. Handlœknisfrœði:
a) Fór í fyrra misserinu með yfirheyrslu og viðtali vfir
handlœknissjúkdóma á úilimum með eldri nemendum i
3 stundum á viku, og i síðara misserinu, í 3 stundum á
viku, yfir handlæknissjúkdóma á liöjði og hálsi. Til
grundvallar við kensluna var lögð Wullstein & Wilms:
Lelnbuch der Cliirurgie.
b) Fór með yfirheyrslu og viðtali í 1 stund á viku, bæði
misserin, yfir almenna handlœknisjrœði mcð yngri nem-
endum. Til grundvallar við ktnsluna var lögð Mar-
wedel: Allgemeine Chirurgie.
c) Hafði æfingar i handlœknisaðgerðum á liki, með elslu
nemendum, og voru þeir látnir framkvæma helstu hand-
læknisaðgerðir. Síðara misserið fjekst ekkert lík til þess-
ara æfinga.
d) Veilti tilsögn 2 stundir á viku í handlœknisvitjun við
ókeypis læknishjálp háskólans. Nemendur framkvæmdu
sjálfir minniháttar handlæknisaðgerðir.
e) Ljet nemendur daglega vera við stofugang i St. Josephs
spítala, og eldri nemendur rannsaka og ýmist skrifa sjúk-
dómslýsingar af sjúklingnm með handlæknissjúkdóma eða
skýra munnlega frá sjúkdómi þeirra og meðferð. Einnig
vóru þeir við meiriháttar handlæknisaðgerðir, og tóku
hinir elstu þátt i þvi að aðstoða kennarann við þau verk.
Venjulega stóðu allar þessar æfingar 1—17* slund á dag.