Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1912, Blaðsíða 29
29
í siðara misserinu fór hann með yfirheyrslum og við-
tali í 4 stundum á viku yfir líjrœna efnafrœði (Odin Christ-
ensen: Organisk Kemi). Auk þess hafði hann æfingar í líf-
rœnni efnarannsókn 3 síðustu mánuðina 2 stundir á viku.
Var farið með nemendunum í helstu eggjahvituefni, kola-
hydröl og fituefni; auk þess rnjólk og þvag.
Aukakennari Vilhelm Bernhöft, tannlæknir:
Hafði verklegar æfingar í tannaútdrœlti og fylling tanna,
1 stund á viku, bæði misserin.
Landlæknir Guðmundur Björnsson
hjelt fyrirleslra um lieilbrigðislöggjöf íslands 1 stund á
viku, síðara misserið.
Heimspekisdeildin.
I. Háskólamisserið frá 1. okt. 1911 til 15. febr. 1912.
Prófessor, dr. phil. Björn M. Ólsen:
1. Haldnir fyrirlestrar um Bókmentasögu íslendinga. Fyrst
lesinn almennur inngangur til bókmentasögunnar og sjer-
staklega til sögu skáldakveðskaparins; síðan farið yfir
sögu skáldakveðskaparins frá elstu timum aftur að Einari
skálaglamm eftir röðinni í liinni islensku bókmentasögu
Finns Jónssonar (Iíhöfn 1904—1905), sem höfð var til
hliðsjónar. Tvær stundir á viku.
2. Farið yfir Völuspá og Prgmskviðu (munnlegar æfingar).
Tvær stundir á viku.
3. Farið yfir íslendingabók Ara fróða (munnlegar æfingar).
Tvær stundir á viku.
1 sambandi við hinar munnlegu æfingar var skýrð
máljrœði íslenskrar tungu eftir ágripi Finns Jónssonar
(Khöfn 1908).
Prófessor, dr. phil. Ágúst H. Bjarnason:
las fyrir ágrip af almennri rökfrœði og inngang að sálar-