Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1912, Page 54
54
3. gr.
Rektor kemur fram af hendi háskólans út á við. Ró getur há-
skólaráðið gjört aðra ráðstöfun um framkomu af hendi háskólans,
standi sjerstaklega á.
4. gr.
Rektor hefur eftirlit með starfsemi háskólans. Hann athugar
hvort misserislestöflur háskóladeildanna eru í samræmi við áðursamdar
kcnsluáætlanir. Hann getur tekið þátt i fundum háskóladeilda, enn á
þó ekki atkvæði utan deildar sinnar. Hann tekur við tilkynningum
kennara um aðra fyrirlestra enn skyldufyrirlestra. Hann gefur út há-
skólaborgarabrjef til handa skrásettum stúdentum, og doktorsbrjef ásamt
hlutaðeigandi deildarforseta handa doktorum. Hann hefur eftirlit með
ritara háskólans og öðrum starfsmönnum, cr seltir kunna að verða
við háskólann.
5. gr.
Verði rcktor að fara frá, áður enn rektorsár hans er úli, skal
deildarforseti, liinn elsti að embættisaldri, hafa störf hans mcð hönd-
uni, þangað til nýr rektor getur tekið við.
Standi öðruvísi á, gengur varaforseli liáskólaráðs í rektors stað.
- V.
Auglýsing
um bráðabirgðareglugjörð fyrir Háskóla Islands
4. október 1911.
I. Sljórn hdskólans.
1. gr.
Háskólaráðið hefur úrskurðarvald í öllum þeim málum er snerta
starfsemi háskólans, svo sem nánar er mælt fyrir um i eftirfarandi greinum.
2. gr.
Háskólaráðið fer með undirbúning mála þeirra, er leggja á fyrir
konung, löggjafarvald cða stjórnarráð og snerta háskólann. Pað lætur
stjórnarráðinu í tje allar þær upplýsingar, sem það þarf á að lialda
og snerta háskólann sjerstaklega.
Aður en núgildandi eða síðar settum ákvæðum um háskólann
verður breytt eða við þau aukið, skal leita umsagnar háskólaráðs um
breytinguna eða viðaukann.