Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1912, Page 58

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1912, Page 58
58 4. gr. Ritari skal gjöra háskólaráðinu skilareikning innan 15. febr. ár hvert fyrir fje pvi, er háskólanum liefur greiðst úr landssjóði umliðið ár. Reikningurinn skal fylgja fjárlögunum lið fyrir lið, enda fylgi skilabrjef viðtakanda greiðslu hverri. 5. gr. Ritari hefur á liendi reikningshald sjóða þeirra, er háskólinn á eða stjórnar, og gjörir háskólaráðinu reikningsskil fyrir ráðsmensku sinni á þeim eigi síðar enn í lok marsmánaðar. Hann heldur sjerstaka, löggilta reikningsbók fyrir hvern sjóð. 6. gr. Ritari setji háskólaráðinu 2000 — tvö þúsund — króna veð fyrir gjaldheimtu sinni, og sýni rektor gjaldabækur sinar og bankaviðskifta- bók á mánaðarfresti og mun reklor votta það í bókinni. 7. gr. Ritari annast kaup á bókum, kensluáhöldum og öðru í þarfir há- skólans, eftir þvi sem háskólaráð eða deildarforsetar mæla fyrir um. 8. gr. Ritari semur spjaldskrá yfir þær bækur deildanna, er geymdar eru í háskólanum, og skrásetur kensluáhöld, enda sje hver bók og hvert áhald skrásett jafnskjótt og fengið er. 9. gr. Geti ritari ekki gegnt starfl sínu vegna sjúkdóms eða annara nauðsynja, verður hann að setja rnann á sinn kostnað í sinn stað, enda samþykki háskólaráð manninn. 10. gr. Ræki ritari starfa sinn ekki viðunanlega, getur háskólaráðið svift hann starfanum. Pannig samþykt á háskólaráðsfundi 6. september 1912. Björn M. Ólsen, rektor.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.