Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Page 14
iö
kend um öll lönd. Nú greinir menn fremur á um það, hve
langt eigi að ganga i þessu efni, hvar takmörkin skuli vera
— eða hvort nokkur takmörk skuli vera.
Tryggingarnar hafa víðast hvar byrjað á verkal5Tðnuni, í
orðsins eiginlegu merkingu, eða hluta af honum og svo
smámsaman fært út kvíarnar. Það lá nærri að bæta við
smáatvinnurekendum, við verslun og handiðn, sem að vísu
unnu fyrir sjálfa sig, en höfðu svo litið um sig, að kjör
þeirra og aðstaða síst var betri en verkamanna. Vandkvæðin
á því að taka slíka menn með, voru ekki sist þau, að ekki
var hægt að draga tryggingargjaldið frá laununum eins og
hjá eíginlegum verkamönnum. Þessi erfiðleiki var ekki á þvi,
að vikka tryggingarnar út fyrír verkamannastjettina og taka
aðra launaða menn með. Svo sem eðlilegt er, þegar trygg-
ingarnar njóta slyrks eða hlunninda af hendi hins opinhera,
koma einnig tekjutakmarkanir til greina, samfara takmörk-
unum eftír stjett eða atvinnu, þannig að menn, sem hafa
meira en ákveðnar hámarkslekjur, þurfl ekki eða megi ekki
njóta góðs af tryggingunum. Yíirleitt hafa breytingar á lög-
gjöfinni gengið i þá átt, að rýmka verksvið tryggingarstarf-
seminnar, einnig að þessu leyti.
Einnig á öðru sviði gerir tilhneigingin til þess að auka
tr}Tggingarnar vart við sig. Það er ekki nægilegt að styrkja
hinn trygða framfærslumann, heldur þurfa tryggingarnar einnig
að ná til þeirra, sem eru á framfæri hans, eða voru það
þegar hann fjell frá. Þegar um sl}TsatrjTggingu er að ræða,
er þetta svo augljóst, að flest lög hafa tekið tillit til þess, en
á öðrum sviðum hafa kröfur i þessa átt að litlu leyti náð
fram að ganga hingað til.1)
StYrktarfyrirkomulagið.
Að framan hafa verið hafðar fyrir augurn eiginlegar, lög-
boðnar tiyggingar, með tryggingargjaldi fyrir hvern einstakl-
ing. Yms lönd hafa, án þess eíginlega að hvika frá tilgang-
inum með, eða afleiðingunum af tryggingarfyrirkomulaginu,
tekið upp annað skipulag um forsjá þjóðfjelagsins, sjerstak-
lega viðvíkjandi þeim, sem hjálparþurfa verða sökum elli
eða lasburða. í stað tryggingarskipulagsins, með iðgjaldi fyrir
1) Sjá Studies and reports M. 1. bls. XVI.