Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1926, Síða 47
43
Kostnaður rikissjóðs við holdsveikraspitalann nam
árið 1923: kr. 81302,51.
— 1924: — 87501,39.
— 1925: — 85171,12.
Samkvæmt 11. grein í lögum nr. 3, 1898 skal greiða öll
gjöld og kostnað við sótthreinsun eflir holdsveika menn úr
ríkissjóði.
3. Lækning kynsjúkdóma.
Samkvæmt 1. gr. laga nr. 16, 20. júní 1923 um varnir
gegn kynsjúkdómum, taka j)au lög til sjúkdómanna: syfilis,
lekandi (gonorrhoe) og linsæri (ulcus molle) og að eins með-
an þeir eru á smitandi skeiði. Þessi takmörkun tekur þá einn-
ig til 6. greinar laganna, sem heimilar ókeypis læknishjálp i
þessu efni öllum, sem ekki hafa efni á að greiða hana sjálfir,
en krefjast skal af þeim vottorðs um það, að viðlögðum dreng-
skap. Hjálpin nær lil allrar læknishjálpar, nauðsynlegra
rannsókna og lyfja og greiðist úr rikissjóði.
Fjárgreiðslur rikissjóðs samkvæmt lögum þessum námu
árið 1924: kr. 4393,10 (L. R, 24. gr. 16. liður).
— 1925: — 4036,05 ( — 24. gr. 11. —)
4. Almennar sóftvarnir.
Ráðstafanir þessar beinast vitanlega fyrst og fremst að því,
að varna útbreiðslu næmra sjúkdóma, en til þess þarf,
meðal annars, að einangra og lækna sýkta menn. Að svo
miklu leyli sem þetta er gert á opinberan kostnað, hefir
fyrirkomulagið í för með sjer nokkurn styrk lil handa ein-
staklingnum, er fyrir sjúkdómnum verður, ókeypis lækningu
o. þvíl., en að öðru leyti hafa þessar ráðstafanir ekki fyrir
augum að bæta sjúklingnum Ijón það, er hann verður fyrir.
a. Samkvæmt 25. grein laga 6. nóv. 1902 um varnir gegn
þvi, að næmir sjúkdómar berist til íslands, skal greiða úr
rikissjóði allan legukostnað sjúklinga i sótlvarnarhúsi, —
sjá 6. grein laganna, sbr. nú lög nr. 34, 27. júní 1925 — út-
fararkoslnað framliðinna og allan annan kostnað, er af lög-
unum leiðir, með nokkrum undantekningum, sem nú skulu
taldar, að því er máli skiftir um sjúkrakostnaðinn:
Fiskiskip frá öðru ríki skal greiða allan kostnað þann, sem
annars fellur á rikissjóð. Sama er og um önnur útlend skip,
ef þau hafa ekki ætlað sjer á islenska höfn og sóltvarnar-
nefnd álitur, að þau hafi einungis komið þar vegna veikinda