Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1927, Blaðsíða 5
I. Stjórn háskólans.
Reklor háskólans háskólaárið 1926—1927 var prófessor
Guðmundur Thoroddsen, kosinn á alraennum kennarafundi
17. júni 1926.
Deildarforsetar voru þessir:
Prófessor Sigurður P. Sívertsen í guðfræðisdeild.
—Guðmundur Hannesson i læknadeild.
—»— Ólafur Lárusson i lagadeild.
—»— dr. phil. Ágúst H. Bjarnason í heimspekisdeild
Áttu þessir deildarforsetar sæli í háskólaráðinu undir for-
sæti rektors.
II. Skrásetning stúdenta.
Háskólasetning og skrásetning nýrra stúdenta fór fram
laugardaginn 2. október kl. 1 e. h. að viðstöddum kennur-
um háskólans og stúdentum. Rektor mintist fyrst látins
kennara, Rjarna dósents Jónssonar frá Vogi, og flutti því
næst ræðu þá sem hjer fer á eftir. Að lokinni ræðunni af-
lienti hann nýju stúdentunum háskólaborgarabrjefin en á
undan og eftir voru sungnir kaflar úr háskólaljóðunum.
Þá bauð rektor velkominn til háskólans Dag Strömbáck,
lic. philol. frá Uppsölum, sem kominn var til þess að flytja
fyrirlestra næstu mánuðina, við háskólann, um sænskar
bókmentir.