Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1927, Blaðsíða 27
25
4. Fór yfir nokkur íslensk kvœði jrá 15.—17. öld. Tvær
stundir í viku síðara misserið.
Prófessor, dr. phil. Páll Eggert Ólason.
Saga Islands frá upphafi siðaskifta á 16. öld til einvalds-
hyllingar (með stúdentum), 4 stundir í viku hvort misserið.
Dósent, dr. phil. Alexander Jóhannesson.
1. Skýrði rúnaristur 1 stund í viku fyrra misserið.
2. Hafði æfingar í goinesku 1 stund í viku síðara misserið.
3. Fór yfir germanska samanhurðarmáljrœði 1 stund í viku
fyrra misserið.
4. Fór yfir nokkrar rímur 1 stund í viku fyrra misserið.
5. Fór yfir íslenska mál/rœði 1 stund í viku fyrra misserið.
6. Fór yfir íslenska málssögu 1 stund í viku síðara misserið.
7. Flutti fyrirlestra um islenska orðmyndunarfrœði 1 stund
í viku fyrra misserið.
8. Hafði rilœ/ingar í islensku 1 stund í viku hvort misserið;
siðara misserið fyrir erlenda slúdenta.
VII. Próf.
Guðfræðisdeildin.
í Iok siðara misseris gengu 3 stúdentar undir embættispróf
í guðfræði og stóðust það allir.
Skriflega prófið stóð yfir dagana 30. og 31. maí og 1. og 3. júni.
Verkefni voru þessi:
I. í gamlaleslamenlisfrœðum: Amos 3, i,—n.
II. í nýjateslamentisfrœðum: Lýs kenningu Jesú um gæði
guðsrikis og um skilyrði fyrir inngöngu í guðsriki, eins
og hún birtist í guðspjöllunum.
4