Árbók Háskóla Íslands

Árgangur

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1927, Blaðsíða 44

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1927, Blaðsíða 44
42 Mensa starfaði þetta ár með líkum hætti og áður. Nokkurt þref varð milli Háskólaráðs og Stúdentaráðs út af styrkgreiðslu til Mensa úr háskóla- sjóði. Sömuleiðis urðu haiðar deilur milli Stúdentafjelags háskólans og Mensastjórnarinnar út af fundahöldum fjelagsins á Mensa. Varð Stúdentaráðið að eiga í málum þessum, og lauk þeim að lokum með sigri fyrir Stúdentafjelagið, enda var það al-viðurkent, að eitt höfuð- atriði í starfsskrá Mensa academica væri það, að skjóta skjóii yfir háskólastúdenta og fundi þess. Að öðru leyti gekk reksturinn eins vel og hægt er að vænta. En því miður er þess ekki að vænta, að Mensa geti fullnægt til hlitar þeim kröfurn, sem gera verður til slíkrar stofn- unar, meðan hún verður að gera sjer að góðu húsakynni þau, sem hún hefur nú, en þau eru bæði dýr og ónóg. Vegna þessa dýra hús- næðis, og af fleiri ástæðum, hefur orðið að reka matsöluna að sumriuu með nokkrum halla. En þar af ieiðir, að verð á fæði að vetrinum hefur oröið dýrara en ella. Mikiu veidur þó um hag Mensa, að stúdentar sjálfir hlynni að henni og skifd við hana, en á því hefur verið mis- brestur nokkur og er það iila farið. Eigi að siður má telja hag Mensa góðan. En ekki er hag hennar fullborgið fyr en Stúdentagarðurinn kemst upþ og Mensa hefur fengið ný húsakynni, betur við sitt hæfi en nú er. Lesstofan og bókastafn stúdenta. Fráfarandi Stúdentaráð hafði lagt til samkvæmt tillögum Þorkels Jóhannessonar að hætt væri við lesstofuna, en í þess stað yrði komið upþ bókasafni. Var sú tilhögun samþykt af Stúdentaráðinu og falið Lúðvíg Guðmundssyni og formanni að undirbúa framkvæmdir í þessu efni. Gerðu þeir fátt annað en að kaupa hókaskáp einn mikinn, og visa frá sjer eða semja um gamlar skuldir lesstofunnar. En að vísu er hjer um nauðsynlegt framfaramál að ræöa meðan sakir standa þannig, að ekkert háskóiabókasafn er til. En svo er um þetta sem fleira, að þess er eigi að vænta, að mikið verði aðgert, fyrri en Stúdenta- garðurinn rís, þvi að húsnæði skortir. Pó er gott að byrjun er gerð. Stúdentaskifti og Upplýsingaskrifstofa. Hvorttveggja þetta var að mestu í höndura Lúðvígs Guðmundssonar, svo sem fyrri. Fje var lítið til stúdentaskifta, þvi skuldir hvíldu á nefndinni frá fyrra ári. Var einum stúdent veittur styrkur lil utanfarar. En Upplýsingaskrifstofan kom mörgum að haldi, og sýnir reynslan, að það er mikil þörf fyrir slíka stofnun, eigi aðeins vegna stúdenta heldur alla þá, sem leita sjer mentunar erlendis. Komu t. d. ýrasir iðnaðarnemar til Upplýsingaskrifstofunnar og fengu þann fyrirgreiða, sem kostur var að veita.

x

Árbók Háskóla Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.