Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1927, Page 42
40
Flyt kr. 37500.00
3. Samkv. 2. gr. 3.
a. Utanfararsyrkur kadidata — 14000.00
b. Stúdentaheimili........... — 1500.00
----------- — 15500 00
4. Óvís gjöld (Arb. o. fl.)...................— 5000.00
Samtals kr. 58000.00
Skýrsla um Stúdentaráðið og störf þess 1925—1926.
Á fundi 28. okt. 1925 kaus Stúdentaráðið stúd. niag. Porkel Jóhannes-
son frá Fjalli til þess að eiga sæti í ráðinu næsta háskólaár. Fóru
síðan frara kosningar nýrra ráðsmanna í deildura Háskólans 30. okt.,
og hlutu þessir kosningu: Kristinn E. Andrjesson, í heimsþekisdeild,
Kristinn Stefánsson, í guðfræðisdeild, Einar Ástráðsson, í læknadeild
og ísleifur Árnason, í lagadeild.
Hinn 3. nóv. átti frara að fara kosning fjögurra fulltrúa af hálfu
háskólastúdenta. En þegar framboðsfrestur var útrunninn, kom það í
Ijós, að eigi höfðu gefið kost á sjer til þessa kjörs nema fjórir slúdentar.
Voru þeir því sjálfkjörnir. Stúdentarnir voru þessir: Einar B. Guð-
mundsson, stud. jur., Eiríkur Brynjólfsson, stud. theol,, Karl Jónasson,
stud. med. og Sigurður Sigurðsson, stud. med.
Fyrsti fundur hins nýkjörna Stúdentaráðs var haidinn á Mensa 4.
nóv. 1925. Var þar kosin stjórn ráðsins og hlutu þessir kosningu:
Porkell Jóhannesson, formaður, Karl Jónasson, gjaldkeri og ísleifur
Árnason, skrifari. — Á þessum fundi skilaði formaður fráfarandi
Stúdentaráðs af sjer slörfum, og benti ráðinu á nokkur þau mál, er
þá lágu næst fyrir hendi.
Störf Stúdenlaráðsins voru flest hin sömu á þessu ári og venjulaga.
Má kalla, að starfsskráð Stúdentaráðsins og starfstilhögun frá ári til
árs sje komin i fastar skorður. Get jeg því verið fáorður um flesta
þætti starfsins, þar sem ekki er um að ræða neinar nýungar. Er og
nógan fróðleik að flnna í skýrslum Stúdenlaráðsins frá fyrri árum
um tilhögun og áform helstu stofnana, sem Stúdentaráðið starfrækir
eða lætur starfrækja.
1. desember.
Hátíðahöld stúdenta fullveldisdaginn 1. des. fóru fram með líkum