Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1927, Qupperneq 43
41
hætti og fyrri. Stúdentablaðið kom út í líku sniði og áður, þó nokkuð
stærra og fjölbreyttara en fyr. Virðist auðsjeð, að útgáfa þessa blaðs
muni verða hjeðan af sjálfsagður þáttur í starfi Stúdentaráðsins, a. m.
k. þangað til að nauðsynlegt þykir að stækka blaðið og fjölga tölu-
blöðum, sem væntanlega verður gert áður langt líði. Verður þá nauð-
synlegt að hafa fastan ritsljóra, og raunar er það ýmsum annmörkum
bundið, þótt ekki sje nema um eilt blað að ræða, er út komi 1. des.
ár hvert, að gera það sæmilega úr garði á svo stuttum tíma, sem
raun er á, frá því er blaðnefnd er kosin af nýju Stúdentaráði í nóv-
embersbyrjun og fram um 20. nóv. er efnið verður að vera tilbúið.
Ágóði af blaðinu varð um 750 kr. Að öðru leyti fóru hátíðahöldin
fram með líku sniði og áður og enduðu með dansleik stúdenta í Iðnó.
Það hefur þólt viðbrenna undanfarið að þátttaka stúdenla sjálfra í
hátíðahöldunum væri ekki glæsileg og æskilegt væri. Má þar fyrst og
fremst nefna skrúðgöngu stúdenta til Háskólans. Er bæði, að hún hefur
oft verið fáliðaðri en skyldi, og tæplega með þeim svip sem hæfði
svo veglegri hátíð og greindi skrúðgönguna frá venjulegri sorgargöngu
stúdentanna. Tilraun var gerð til þess, að setja meiri viðhafnarsvip á
skrúðgönguna með því að láta hljóðfæraílokk ganga í fararbroddi og
leika stúdentalög, og skyldu stúdentar sjmgja með einróma. í þelta
skifli gat þó ekki af þessu orðið sökum þess, að hljóðfæraflokkinn
skorti nótur! Pess er að vænta, að ekki líði á löngu áður en tekst að
koma því sniði á skrúðgönguna sem hæfir skrúðfylkingu á slíkum
heiðursdegi.
í sambandi við hátíðahöldin 1. des. vaknaði upp annað mál, sem
væntanlega á eftir að hafa mikil áhrif á fjelagslífstúdenta ogsamkvæmi öll.
Stúdentakór.
fað hefur margoft koinið í ljós, að eitt af því, sem veldur þyngstum
örðugleikum um það, að fjelagslíf stúdenta geti verið svo ánægjulegt
sem skyldi, er það, að eigi hefur verið til neinn reglulegur söngflokkur
stúdenta. Að vísu hafa undanfarið verið nokkur samtök um söng og
hafa þau gert töluvert gagn. En eigi verður talið, að þessu máli sje
vel borgið fyrri en svo er um búið, að flokkurinn er orðinn öruggur
þáttur fjelagsframkvæmda stúdentanna og honum tryggt eitthvað
starfsfje. Átti Stúdentaráðið þátt í því að stofnað var Stúdentakór
undir stjórn Sigfúsar Einarssonar organista. Voru rúmlega 30 manns
í söngsveit þessari, eldri stúdentar og yngri. Lagði Stúdentaráðið
söngfiokknum nokkurt fje til nauðsynlegra útgjalda fyrst um sinn. Er
þess að vænta að söngflokkurinn verði i framtíð mikill styrkur stúdenla-
fjelagsskap öllum hjer í bænum, og til sóma fyrir háskólann.
6