Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Síða 6
4
merkar nýjungar eða einhverjar mikilvægar breytingar til hins
betra, sem orðið hefðu á skipulagi eða starfsemi háskólans.
En árin eru mismunandi viðburðarík, hér sem annars staðar,
og síðastliðið háskólaár er eitt í tölu þeirra ára, sem eigi verða
talin viðburðarík í sögu þessarar stofnunar. Starf háskólans
hefur gengið sinn vanagang, eftir áætlun, kennsla og próf far-
ið fram eins og reglugerðin mælir fyrir um.
í upphafi háskólaársins var tala stúdenta, sem skráðir voru
til náms við háskólann, 429. Fullnaðarprófi luku á árinu 8 kandí-
datar í guðfræði, 6 í læknisfræði, 12 í lögfræði, 4 í viðskipta-
fræðum, 2 í íslenzkum fræðum og 6 í verkfræði. Þessir síð-
ast nefndu 6 kandídatar í verkfræði, eða nánar tiltekið í bygg-
ingarverkfræði, eru fyrstu kandídatamir, sem lokið hafa fulln-
aðarprófi í þeirri fræðigrein hér við háskólann, og þeir einu,
er því prófi ljúka hér um óákveðinn tíma, þvi framvegis verð-
ur starf verkfræðideildarinnar það eitt að búa stúdenta undir
fyrra hluta próf í verkfræði, sem veiti þeim aðgang að erlend-
um verkfræðiskólum til að ljúka námi sínu þar. Síðastliðið
ár tóku 5 stúdentar fyrra hluta próf í verkfræðideildinni, og
hafa þeir allir farið til framhaldsnáms til erlendra skóla. Fimm
kandídatar luku B.A. prófi. Það hafa því alls 48 háskólaborg-
arar lokið námi sínu á háskólaárinu. Nokkrir hinna skráðu
stúdenta hafa horfið frá háskólanum, ýmist hætt námi eða
farið til náms erlendis, en í haust hafa 148 nýir stúdentar
látið skrásetja sig, og er tala stúdentanna nú 478, og hefur
hún aldrei hærri verið. Meðal hinna nýju stúdenta eru nokkr-
ir erlendir stúdentar, og er sérstök ástæða til að fagna þeim.
Á árunum fyrir ófriðinn sóttu ýmsir stúdentar frá öðrum lönd-
um hingað, og fór sú aðsókn smávaxandi, en á ófriðarárunum
tók að heita mátti fyrir komu þeirra. Nú eru þeir farnir að
koma aftur, og er vonandi, að þeim fjölgi, er greiðara verð-
ur um ferðir hingað til lands og dvalarkostnaður lækkar frá
því, sem nú er.
Á kennaraliði háskólans hefur sú breyting orðið, að hing-
að er kominn lektor í dönsku, cand. mag. Martin Larsen. Býð
ég hann velkominn hingað til háskólans og óska honum allra