Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Blaðsíða 18
16
nefnd til þess að dæma um hæfi umsækjanda skv. 9. gr. há-
skólareglugerðarinnar voru kosnir: próf. Jón Hj. Sigurðsson
af hálfu læknadeildar, formaður nefndarinnar, prófessor Jón
Steffensen og dr. med. Helgi Tómasson, tilnefndir af háskóla-
ráði, Bjöm Guxmlaugsson læknir og Valtýr Albertsson læknir
eftir tilnefningu menntamálaráðherra. Umsækjendur um emb-
ættið voru 4: Jóhann Sæmundsson yfirlæknir, Sigurður Sig-
urðsson yfirlæknir, dr. med. Óskar Þ. Þórðarson og Ófeigur
J. Ófeigsson læknir. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu, að
3 hinir fyrstnefndu væru hæfir til þess að gegna embættinu.
Læknadeild lagði til, að dr. Óskari Þ. Þórðarsyni yrði veitt
embættið.
Hinn 8. júlí 1947 var Jóhann yfirlæknir Sæmundsson skip-
aður prófessor í lyflæknisfræði frá 1. sept. 1948 að telja. Þar
sem embættið þannig hafði verið veitt gegn tillögum lækna-
deildar, óskaði deildin, að háskólaráð vítti meðferð mennta-
málaráðuneytisins á máli þessu. Samþykkti háskólaráð á fundi
1. ágúst 1947 svofellda ályktun, er send var menntamálaráðu-
neytinu:
1 tilefni af samþykkt læknadeildar 11. f. m. lýsir háskóla-
ráðið því yfir, að það telur mjög mikilsvert, að umsækjendur
um kennarastöðu við háskólann hafi hlotið sem beztan und-
irbúning undir hið væntanlega starf sitt. Háskólaráðið lítur
enn fremur svo á, að hver deild háskólans sé á sínu sviði hæf-
astur aðili til að meta gildi undirbúning þess, er hver ein-
stakur umsækjandi hafi hlotið, og að affarasælast muni reyn-
ast, að eftir tillögum deildarinnar sé farið við veitingu embætt-
isins. Læknadeildin telur, að við nýafstaðna veitingu prófess-
orsembættisins í lyflæknisfræði hafi verið gengið fram hjá
þeim umsækjandanum, er beztan undirbúning hefði hlotið, og
telur háskólaráðið það miður farið, enda þótt það beri fullt
traust til þess manns, er veitingu fékk fyrir embættinu.
2. Dósentsembœtti í viðskiptafræðum. Annað dósentsemb-
ættið í viðskiptafræðum, sem stofnað var með lögum nr. 66
1944, hafði verið óveitt síðan þau lög voru sett, og hafði Ólafur
hagfræðingur Björnsson gegnt embættinu sem settur dósent.