Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Page 22
20
Oslo, próf. A. W. Brögger í Oslo og Konrad Persson, aðalfor-
stjóra sænsku tryggingarstofnunarinnar. Þrír hinir síðastnefndu
gátu ekki þegið boð háskólans, en próf. A. Jolivet, próf. J. H.
Delargy og próf. A. I. Virtanen vitjuðu boðsins á háskólaár-
inu 1947—48.
Aldarafmæli Prestaskólans. Samþykkt var að minnast þess,
að 2. okt. 1947 yrðu liðin 100 ár frá stofnun Prestaskólans,
og voru prófessoramir Ásmundur Guðmundsson og dr. Magnús
Jónsson kosnir í nefnd ásamt rektor til þess að undirbúa þá
hátíð.
Landsmót stúdenta 1947. 1 framkvæmdanefnd mótsins var
af hálfu háskólans kosinn próf dr. Einar Ól. Sveinsson.
Erlendir háskólar.
Háskólinn í Lundi bauð háskólanum að senda fulltrúa á
hátíð í tilefni af 100. ártíð Esaias Tegners 2. nóv. 1946. Próf.
dr. Jón Hélgason í Kaupmannahöfn flutti kveðju frá Háskóla
Islands á hátíðinni.
Princeton-háskóli í New Jersey bauð háskólanum að senda
fulltrúa á tveggja alda afmælishátíð 16. og 17. júni 1947. Enn
fremur City College í New York á aldarafmælishátíð 7. maí
1947. Próf. Níéls DungaL, er þá dvaldist í Bandaríkjunum, var
falið að koma þar fram fyrir hönd háskólans.
Háskólinn í Prag átti 600 ára afmæli í apríl 1948 og sendi
Háskóla Islands boð á afmælishátíðina, en ekki var auðið að
senda þangað fulltrúa.
Loks barst boð á áUsherjar landfrœðingamót í JAssdbon í
september 1948, á jarðfrœðingafund í London 1948 og efna-
fræðingafund i London í júlí 1947.
Háskólabyggingin. Náttúrugripasafninu voru leyfð afnot af
stofu í kjallara árið 1947.