Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Page 63
61
geymslu: Afgreiðsla Eimskipafélags íslands h/f. Á fylgibréfið var
prentað skýrum stöfum: Ákvæði siglingalaga um farmskírteini gilda.
Ámi vildi nú leita réttar síns.
Gegn hverjum er honum rétt að höfða mál, hverjar kröfur er
honum rétt að gera og hver verða rökstudd úrslit þess?
Skriflega prófið fór fram dagana 2., 5., 7. og 9. maí.
II. Fyrri hluti embættisprófs í lögfræði.
1 lok fyrra misseris luku 3 stúdentar fyrra hluta embættis-
prófs, en 10 í lok síðara misseris.
Verkefni í skriflegu prófi í janúar voru þessi:
I. 1 sifja- og erfðarétti: Hvernig er greint milli gjafþega og
erfingja og að hverju leyti koma mismunandi reglur til
greina um þá?
n. I stjórnlagafræði: Skýrið 67. gr. stjómarskrárinnar.
Verkefni í skriflegu prófi í maí voru þessi:
I. 1 sifja- og erfðarétti: Hvaða reglur giida um afsai arfs?
H. í stjórnlagafræði: Lýsið regltmum um fjárlög.
Prófdómendur voru dr. jur. Einar Arnórsson og dr. jur.
Björn Þórðarson.
III. Kandídatspróf í viðskiptafræðum.
1 lok fyrra misseris luku 3 stúdentar kandídatsprófi í við-
skiptafræðum. 1 lok fyrra misseris luku enn fremur 12 stú-
dentar prófi í almennri lögfræði. 1 lok síðara misseris luku
3 stúdentar prófi í tölfræði, 7 í álmennri bókfærslu, 1 í verzl-
unarrekstrarfræði, 1 í bankarekstrarfrœði, 9 í kröfurétti, 2
í álmennri lögfræði og 5 í viðskiptareikningi.
Verkefni í skriflegu prófi í janúar 1947 voru þessi:
Verkefni í ritgerð:
Bjarni F. Halldórsson: Einkenni íslenzkra hlutafélaga.
Egill Símonarson: Samanburður á þróun verðlags í fyrri og
síðari heimsstyrjöld.
Vilberg Skarphéðinsson: Samanburður á hugtökunum skatt-
skyldar tekjur og skattskyld eign samkvæmt íslenzkum skatta-