Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1947, Blaðsíða 79
77
Séra Friðrik Fnðriksson:
Séra Friðrik Friðriksson hefur um meira en aldarhelming
helgað Guðs kristni alla krafta sína með fómfúsum og frábær-
um hætti, sem kunnur er alþjóð á Islandi. Hann er í senn
æskulýðsleiðtogi af Guðs náð, ágætur rithöfundur og sálma-
skáld, svo að nafn hans mun verða ógleymanlegt í kirkjusögu
Islands. Hann er einnig mjög vel lærður maður, og hefur
hvarvetna með störfum sínum og framkomu allri erlendis auk-
ið hróður þjóðar vorrar. Fyrir því vill guðfræðisdeildin votta
honum virðingu sína og þökk með hæsta heiðri, sem hún
ræður yfir.
Á fundi sínum 12. okt. 1946 samþykkti laga- og hagfræðis-
deild að veita Þorsteini hagstofustjóra Þorsteinssyni nafnbótina
doctor oeconomiae honoris causa með þessum formála:
Þorsteinn Þorsteinsson hefur unnið mikið og gagnmerkt
brautryðjandastarf í þágu íslenzkrar hagfræði. Um 33 ára
skeið hefur hann veitt forstöðu Hagstofu Islands eða allt frá
stofnun hennar. Hann hefur skipulagt þá söfnun heimilda um
þjóðarbúskap Islendinga, er Hagstofan hefur annazt og meg-
inhluti þeirra rannsókna, sem gerðar hafa verið á hag og af-
komu þjóðarinnar, hefur grundvallazt á. Hann hefur séð um
útgáfu allra rita þessarar stofnunar, en þau eru á annað hundr-
að að tölu, og fylgt þeim úr hlaði með ítarlegum yfirlitsrit-
gerðum. 1 30 ár hefur hann stjórnað útgáfu mánaðarrits um
hagmálefni Islendinga og ritað meginhluta þess. Enn fremur
hefur hann sem forstöðumaður Hagstofunnar innt af hendi
fyrir stjómarvöld landsins margskonar rannsóknarstörf á ýms-
um sviðum þjóðarbúskaparins. Auk þeirra ritstarfa og þess
rannsóknarstarfs, sem Þorsteinn Þorsteinsson hefur innt af
hendi í sambandi við embætti sitt, hefur hann og ritað ýmsar
ritgerðir um hagfræðileg efni og þýtt erlend rit. Af þessum
ritgerðum hans má telja merkasta „Island under og efter Ver-
denskrigen“, en það er ítarlegt rit um hagsögu íslands í hinni
fyrri heimsstyrjöld og hið eina, sem til er um það efni. öll